Tónlistarskólastjóri Grindavíkur frumsýnir Óperettu í Iđnó
Glćný hinsegin óperetta verđur frumsýnd í Iđnó laugardaginn 22. október kl. 16:00.
Höfundar verksins sem einnig fara međ hlutverk ţeirra Lauga og Ólivers eru ţeir
Gautur G. Gunnlaugsson og Gunnar Kristmannsson, auk ţeirra fer Hrólfur Sćmundsson
međ hlutverk Gests. Leikstjóri sýningarinnar er Ţröstur Guđbjartsson og á píanó
leikur Raúl Jiménez.
Verkiđ heitir "Gestur-síđasta máltíđin" og fjallar um ţá Lauga og Óliver sem
eru samkynhneigđ hjón í Grafarholtinu.
Laugi er heimavinnandi en Óli vinnur í banka og ţeir una nokkuđ glađir viđ
sitt ţar til nágranni ţeirra, sjarmatrölliđ og atvinnuflugmađurinn Gestur,
setur líf ţeirra úr skorđum. Smávćgilegur misskilningur kallar fram afbrýđi
og hefndarhug sem kemur af stađ bráđfyndinni atburđarrás međ óvćntum endi.
Tónlistin er ákaflega vönduđ og áheyrileg og spannar fjölmargar stílgerđir
vestrćnnar tónlistar; eina stundina er hún létt og fjörug í ćtt viđ Mozart
og ađra hádramatísk og rómantísk.
Leiktextinn er farsakenndur og meinfyndinn og hann ásamt tónlistinni myndar
ţetta stórskemmtilega verk.
Miđasala í Iđnó í síma:562-9700 og á idno@xnet.is