Aðal-braut er fimm ára og í tilefni dagsins verða fimm ára gömul verð á ýmsum vörum til 3. mars nk. Benný Ósk Jökulsdóttir og Kári Steinsson reka Aðal-braut og hafa þau aukið úrvalið þar jafnt og þétt á þessum árum og auk þess staðið fyrir ýmum uppákomum.
Á meðal þess sem verður á fimm ára gömlu verði eru ostborgarar, samlokur, bátar og fjölskyldutilboðin sívinsælu.