Hárgreiðslustofan Hárhornið sem er nú til húsa á gömlu vigtinni á Hafnargötunni heldur upp á tíu ára afmæli sitt í dag, 24. febrúar. Mikið verður um að vera í tilefni dagsins en fjórmenningarnir sem vinna á stofunni verða með opið hús í dag frá kl. 18-21.
Að sögn Ragnheiðar Þóru Ólafsdóttur gengur vel á Hárhorninu. Þær eiga tryggan kúnnahóp og andinn á stofunni er ávallt góður. Auk Ragnheiðar vinna þær Anna Schmidt, Tobba og Gerður Björg á stofunni.
Í tilefni afmælisins verður VSK-lausir dagar á vörum í dag og út næstu viku. Ragheiður leggur áherslu á að allir bæjarbúar séu velkomnir á opna húsið í kvöld.