Umhverfisnefnd Grindavíkurbæjar bendir á að mikill misbrestur sé á umgengni varðandi salthauginn á Hópsnesi og er ástandið algjörlega óviðunandi. Nefndin beinir því til skipulags- og bygginganefndar að setja strax upp skilti við salthauginn og hefta aðgang og fundin verði framtíðarlausn salthaugsins í samráði við þau fyrirtæki sem nýta svæðið.