Sri Lanka dagur var í leikskólanum Laut í síðustu viku en á leikskólanum eru börn sem eiga ættir að rekja þangað. Horft var á fræðslumyndband um landið og afi og amma Lúkasar komu færandi hendi með ýmsan fatnað, myndir og muni frá Sri Lanka. Einnig komu þau með smá sýnishorn af matargerð sem tíðkast í þeirra heimalandi.
Begga kokkur framleiddi síðan gómsætan kjúklingarétt með Sri Lanka ívafi. Flottur dagur og virkilega gaman að ættingjar gefi sér tíma til að kynna land sitt og þjóð . Myndir frá deginum má sjá á myndasíðu Lautar