Róbert Ragnarsson bæjarstjóri skrifaði í dag formlega undir samning við Grindina ehf. sem átti lægsta tilboð í framkvæmdir í Víðihlíð. Tilboðið hljóðaði upp á 10.432.140 kr. eða 56,3% af kostnaðaráætlun . HH Smíði og HK Verk buðu einnig í framkvæmdina. Breytingarnar felast í því að opna rými í Víðihlíð og bæta við sólstofu. Framkvæmdir hefjast á næstu dögum.