Fannar Ólafsson fyrirliði KR segir í viðtali við heimasíðu KR að Vesturbæjarstórveldið þurfi helst að vara sig á Þorleifi Ólafssyni í Grindavíkurliðinu. ,,Hann er prímusmótorinn. Ef hann er að spila vel þá er allt liðið hjá þeim að spila vel. Svo væri líka fínt ef að Páll Axel hefði sig hægan," sagði Fannar.
Grindavíkur hefur tapað fjórum deildarleikjum í röð. Fannar var spurður að því hvort það skiptir nokkru máli þegar komið er í svona leik?
,,Nei ekki nokkru. Ef menn koma ekki tilbúnir að spila í bikarúrslitaleik þá eiga þeir að fara að einbeita sér að bumbunni. Minni á að Grindvík vann okkur sannfærandi á sínum heimavelli þegar liðin spiluðu síðast."
Viðtalið í heild má lesa hér.