John Soul: Sannkallađur hvalreki í Saltfisksetrinu
Ţekktur breskur listamađur, John Soul opnađi á laugardaginn myndlistasýningu í sýningarsal Saltfiskseturs Íslands. Ţar sýnir John dúkristur og einnig verk sem eru útskorin úr tré. John er frá Oxford í Englandi ţar sem hann lćrđi list sína og tók mastersgráđu frá konunglega listaháskólanum. Ţá hefur John um árabil kennt í listaskólum um víđa veröld og haldiđ fjölda einkasýninga. Ađspurđur segist John hafa heillast mjög af sýningasalnum ţegar hann var hér á ferđ fyrir rúmu ári síđan og ákveđiđ ađ halda sýningu í Grindavík hiđ fyrsta. Hrönn Kristjánsdóttir sýningastjóri sagđi ţađ vera mikinn hvalreka ađ fá svo ţekktan og góđan listamann til ađ sýna verk sín í Grindavík. ?Ţessi sýning hefur strax vakiđ talsverđa athygli, fjölmiđlar og listafólk hefur hringt til ađ forvitnast um máliđ og vil ég hvetja alla sem hafa áhuga á góđri myndlist ađ láta ţessa sýningu ekki fram hjá sér fara en hún mun standa til 31 okt.,? sagđi Hrönn ţegar Víkurfréttir litu viđ á opnunardaginn. Texti og mynd: Ţorsteinn G. Kristjánsson . |