Carbon Recycling International auglýsir í Fréttablaðinu í dag eftir starfsfólki í metanólverksmiðjuna sem nú er í smíðum í Svartsengi. Auglýst er eftir verksmiðjustjóra, yfirmann viðhaldsmála og fimm framleiðslumenn í verksmiðjuna. Auglýsinguna má sjá hér.
Hæfniskröfur eru aðallega vélafræði, rafvirkjun eða önnur iðnmenntun. Grindvíkingar eru sérstaklega hvattir til að sækja um.