Grindavík gerði sér lítið fyrir og skellti Íslandsmeisturum Breiðabliks á fótbolta.net mótinu um helgina 1-0. Magnús Björgvinsson skoraði sigurmark Grindvíkinga undir lok leiksins eftir skemmtilega sókn. Grindavík fékk 4 stig úr þremur leikjum í mótinu og varð í 3. sæti í sínum riðli og mætir Stjörnunni í leik um 5. sætið um næst helgi.
Blikar voru sterkari í fyrri hálfleik en Grindvíkingar í þeim síðari og var gaman að sjá til Grindavíkurstrákana sem spiluðu þétta vörn og beittu snörpum skyndisóknum.
Lið Grindavíkur; Óskar, Guðmundur Egill, Guðmundur Bjarna, Markó Valdimar, Ray, Jói Helga, Orri, McCunnie, Einar Helgi, Magnús og Scotty. Inn á komu Gunnar Þorsteins, Óli Baldur, Matthías Örn, Jóhann Helgi, Emil Daði og Milos.