Nú þegar þorrinn er genginn í garð gerir fólk sér glaðan dag í mat og drykk. Nemendur og starfsfólk Hóppskóla eru engin undantekning á því. Þorri var blótaður með dýrindis krásum. Boðið var upp á þorramat í trogum og gerðu nemendur matnum góð skil.
Axel í Matarlyst brást skjótt við bón sem barst honum um breytingu á matseðli og mætti með trogin full af mat. Nemendur létu sitt ekki kyrrt liggja og gerðu honum góð skil.
Mjöðurinn var látinn liggja á milli hluta en mjólk og vatn drukkin með.