Atvinnumála- og ferðanefnd Grindavíkurbæjar skorar á ríkisstjórnina að eyða þeirri óvissu sem ríkir um framtíð sjávarútvegs á Íslandi og styðjast við þær tillögur sem sáttanefndin lagði til. Grindavík byggir afkomu sína að stórum hluta á bolfiskvinnslu og hefur þessi óvissa sem ríkir lamandi áhrif á atvinnulífið hér í bæ, segir í fundargerð nefndarinnar.