Vakin er athygli á námskeiði fyrir konur sem vilja hrinda viðskiptahugmyndum í framkvæmd með nýju eða starfandi fyrirtæki en það er haldið á vegum Frumkvöðlasetursins í Ásbrú. Sérstaklega er auglýst eftir kraftmiklum konum úr Grindavík. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur:
- skrifi viðskiptaáætlun
- kynnist grundvallaratriðum varðandi stofnun fyrirtækja
- öðlist hagnýta þekkingu á þeim háttum sem koma að fyrirtækjarekstri, s.s. stefnumótun, markaðsmálum, fjármálum og stjórnun.
Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum, verkefnavinnu og persónulegri handleiðslu og hentar jafnt konum sem eru að hefja rekstur og konum sem reka nú þegar fyrirtæki.
Umsóknarfrestur er til 27. febrúar nk. Kennsla hefst í byrjun febrúar 2011.
Nánari upplýsingar og skráning á vefsíðu Impru á Nýsköpunarmiðstöðu, www.nmi.is/impra eða hjá Selmu Dögg Sigurjónsdóttur verkefnisstjóra í síma 522 9434, selma@nmi.is