Mikið fjör og húllumhæ var á leikskólanum Laut í síðustu viku en þá var nepalskur dagur á leikskólanum en Flóvent í Hlíð á pabba sem er frá Nepal. Börnin gerðu nepalska fánann og Eygló, mamma Flóvents bauð, upp á nepalskt snakk sem heitir samósa. Svo komu tveir gestakokkar, Shalak og Suk, sem eru frá Nepal en þeir vinna út á Reykjanesi í Haustak.
Fengu þeir að skreppa úr vinnunni til að hjálpa Beggu í eldhúsinu að elda nepalskann mat. Boðið var upp á kjúklingarétt með hrísgrjónum, nanbrauði og samósur.
Myndir frá deginum má sjá á myndasíðu Lautar .