Ný hárgreiðslustofa opnar í byrjun mars í verslunarmiðstöðinni þar sem að skólaskrifstofan var áður til húsa á jarðhæðinni. Eigandi stofunnar er Sara Símonardóttir. Hún segist bjartsýn enda er hágreiðslustofan á besta stað í bænum.
Sara ætlar að leigja út 2 stóla og getur áhugasamt hárgreiðslufólk haft samband við hana í síma 699-2591 eða á saras@visir.is og hún mun hafa samband.