Opiđ hús hjá Ţórkötlu

  • Fréttir
  • 17. janúar 2011

Þriðjudaginn 18. janúar næstkomandi bjóða slysavarnadeildir um allt land gesti velkomna í húsnæði sitt og kynna þar starf sitt fyrir þeim aðilum sem áhuga hafa á því að starfa með þeim. Á Suðurnesjum eru það Slysavarnadeildin Þórkatla í Grindavík að Seljarbót 10 og Kvennasveitin Dagbjörg í Reykjanesbæ að Holtsgötu 51 sem bjóða í heimsókn. Dagskráin hefst kl. 20:00.


Innan Slysavarnafélagsins Landsbjargar starfa öflugar slysavarnadeildir sem hafa það að meginmarkmiði að koma í veg fyrir slys ásamt því að styðja við björgunarsveitir á sínu svæði. Starf þessara deilda á sér langa sögu en fyrstu deildirnar voru stofnaðar fyrir um 80 árum og hafa í gegn um tíðina unnið öflugt starf í þágu björgunar og slysavarna.

Öryggi sjómanna hefur alla tíð verið slysavarnadeildum hugleikið enda margar deildanna stofnaðar í þeim tilgangi einum saman að efla sjóslysavarnir. Ekki var vanþörf á því starfi þar sem mest hafa 80 sjómenn látið lífið við Íslandsstrendur á einu ári en með miklu og góðu starfi deildanna og fleiri aðila svo og þróun tækja og búnaðar hefur náðst góður árangur í sjóslysavörnum. Þannig var árið 2008 án mannskaða á sjó og telja fróðir menn að þurfi að leita allt aftur á landsnámsöld til að finna sambærilegt ár.


En starf slysavarnadeilda hefur þróast í áranna rás og fjölmörg ný verkefni litið ljós. Þannig hafa deildirnar sinnt slysavarnaverkefnum sem lúta að öryggisbúnaði barna í bílum, öryggi eldri borgara á heimilum, hafa dreift endurskinsmerkjum til barna, kannað hjálmanotkun barna, skoðað öryggi á heimilum og svona mætti lengi týna til. Í stuttu máli má segja að ekkert viðkomandi slysavörnum sé deildunum óviðkomandi.

Stór þáttur í starfi margra slysavarnadeilda er stuðningur við björgunarsveitir og þannig starfa margar deildir náið með sveitum á sínu svæði bæði við fjáraflanir, sem bakland í útköllum og á margan annan hátt.

Innan slysavarnadeilda starfa margir einstaklingar um allt land og óhætt er að segja að félagsskapurinn sé góður enda má einnig finna í starfi sveitinna dagskrá sem eflir liðsandann auk þess sem félagar deildanna sækja sér fræðslu og þjálfun í ýmsu sem tengist starfinu.

Ef þú vilt slást í hóp skemmtilegs fólks sem sinnir uppbyggilegu og áhugaverðu starfi um land allt bjóða slysavarnadeildir þig velkomin næsta þriðjudag kl. 20:00 en nánari upplýsingar um staðsetningar má finna á vef Slysavarnafélagsins Landsbjargar www.landsbjorg.is


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir