Grindavíkurstúlkur gerðu sér lítið fyrir og skelltu Keflavík í úrvalsdeild kvenna í körfubolta í gærkvöldi, 71-59, en leikurinn fór fram í Reykjanesbæ. Liðin mættust á dögunum í bikarnum og þessi leikur var alls ekki ólíkur þeim fyrri nema hvað að í þetta skiptið voru það Grindavíkurstúlkur sem héldu út allan leikinn og fóru með sigur af hólmi. Þetta var virkilega sætur sigur eftir lélegt gengi í vetur.
Grindvík setti strax tóninn í byrjun leiks og skoruðu fyrstu 5 stig leiksins. Fljótlega voru þær komnar í 10 stiga forystu og algert andleysi í röðum Keflavíkurstúlkna. Það var þó ekki fyrr að Jóhann Ólafsson þjálfari Grindavíkur hvíldi Krystal Boyd að Keflavíkurstúlkur náðu að jafna leikinn 15:15. En stúlkan kom aftur inná og setti niður skot í öllum regnbogans litum.
Annar fjórðungur var alger eign Grindvíkur en hann endaði 9:25 gestunum í vil og lykilleikmenn Keflavíkur langt frá sínu besta og ungu stúlkurnar sem fengu sitt tækifæri nýttu það illa. Að sama skapi voru Grindavíkurstúlkur gríðarlega grimmar í öllum sínum aðgerðum og virtust vera töluvert tilbúnari í leikinn.
Einn leikmaður Keflavíkur var þó með lífsmarki og gott betur í þessum leik. Jackie Adamshick (34 stig 10 fráköst ) var í algerum sérflokki hjá heimaliðinu. Stúlkan barðist eins og ljón á báðum endum vallarins en töluvert vantaði uppá hjá meðspilurum hennar. Líkt og Adamshick var það Krystal Boyd sem var einnig vel heit hjá Grindavík en hún setti niður 29 stig og undir lok leiks þegar Keflavík virtust vera að ná muninum niður setti hún risa þrist sem slökkti allar vonir heimastúlkna.
Munurinn á liðinum í kvöld var einfaldlega sá að Grindvík mætti með drápseðlið á meðan Keflavíkurstúlkur virtust hreinlega hræddar við verkefnið eins og það er orðað á karfan.is
Stig Grindavíkur: Crystal Ann Boyd 29, Berglind Anna Magnúsdóttir 12, Helga Hallgrímsdóttir 10 (11 frák.), Agnija Reke 9, Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir 8, Alexandra Marý Hauksdóttir 2, Harpa Hallgrímsdóttir 1.