Um 900 vinna viđ sjávarútveg í Grindavík

  • Fréttir
  • 12. janúar 2011

Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra fundaði með fulltrúum sveitarfélaga á Suðurnesjum á mánudagsmorgun en Víkurfréttir fjalla um fundinn. Grindavík ber höfuð og herðar yfir aðra í sjávarútveginum á Suðurnesjum. Þar eru veiðar og vinnsla að skapa störf fyrir á níunda hundrað manns í tæplega þrjú þúsund manna bæjarfélagi.

Tilefni fundarins var erindi sem Reykjanesbær sendi ráðuneytinu 1. nóvember í fyrra, þar sem bent var á að bolfiskafli á land í Keflavík og Njarðvík (Reykjanesbæ) var um 50 þúsund tonn á ári á 6. og 7. áratug síðustu aldar og Keflavík var ein aflahæsta höfnin á Íslandi. Nú berast um 5000 tonn á land í Reykjanesbæ árlega eða um 10% af því sem áður var. Fiskvinnsluhúsin sem enn standa og gætu tekið á sig tugþúsundir tonna af hráefni, vantar sárlega hráefni og hundruð manna gætu fengið vinnu.

Mikið óunnið hráefni fer frá landinu á sama tíma og enn má fullnýta betur þær afurðir sem berast á land. Á fundinum með Jóni voru kynntar gagnlegar upplýsingar um veiðar og vinnslu á Suðurnesjum og rætt var um framkvæmd byggðakvótans. M.a. kom fram hjá Helgu Sigurrós Vigfúsdóttur hjá Fiskistofu að öfugt við Vestfirði og Snæfellsnes er verið að vinna úr meiri afla á Suðurnesjum en þar er landað.

„Þetta var fyrst og fremst ágætur upplýsingafundur. Við fengum góðar upplýsingar um stöðu veiða og vinnslu á Suðurnesjum, sem gefa til kynna að Suðurnesjamenn sækja enn sjóinn stíft og vonandi munum við gera það áfram,“ sagði Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri í Grindavík í samtali við Víkurfréttir eftir fundinn.

Róbert sagði áberandi að á Suðurnesjum er talsvert meiri afli unninn en kemur á land. Á Vestfjörðum og Snæfellsnesi senda menn talsvert frá sér til vinnslu.

„Grindvísku bátarnir eru víða um land, en mikið af þeirra afla er keyrt til Grindavíkur til vinnslu. Mikil vinnsla á Suðurnesjum hefur líklega tvær meginskýringar. Annars vegar nálægðin við flugvöllinn og hins vegar að fyrirtækin, sérstaklega í Grindavík og Garði, eru mjög öflug og halda úti vinnslu allt árið um kring. Það skapar stöðuga atvinnu fyrir vel á annað þúsund manns á Suðurnesjum. Um 300 í Garði og milli 8 og 9 hundruð í Grindavík. Í Vogum er líka talsverð vinnsla á vegum Þorbjarnar. Fyrirtækin hafa líka myndað mjög sterk viðskiptasambönd víða um heim sem þau vilja treysta og efla, sem kallar á að þau fái fisk víðar af landinu,“ sagði Róbert.

„Í ljósi þessa höfum við lagt áherslu á að þessi styrka stoð í atvinnulífinu á Suðurnesjum eigi að fá frið og svigrúm til að halda áfram að vaxa og dafna. Nóg er um óvissu og afskipti af atvinnulífinu á Suðurnesjum. Það er alltaf verið að tala um nýsköpun og næsta stóra verkefni, en við megum ekki gleyma undirstöðunni sem hefur verið til staðar allan tímann. Þessar undirstöður hafa líka stutt mörg nýsköpunarverkefni, og þá sérstaklega í áframvinnslu á sjávarafurðum,“ segir Róbert Ragnarsson.

Um byggðakvóta sagði Róbert þetta: „Byggðakvótinn virkar þannig að hann er að mestu tekinn af því aflamarki sem er til staðar í bolfiski. Það er því í raun verið að færa verðmæti og störf milli svæða, en ekki skapa ný. Við, eins og Garðmenn, teljum að byggðakvótakerfið sé ekki lausn á vanda nokkurs svæðis. Byggðakvóti ætti að vera neyðarráðstöfun. Nokkurskonar lyfjagjöf til byggða í sárum. Hins vegar virðist lyfjagjöfin vera orðin nokkuð stöðug og viðvarandi til ákveðinna svæða, sem bitnar á svæðum eins og okkar. Mér sýnast ýmis ákvæði í reglugerðinni, svo sem um stærð byggðarlaga taka mið af stöðu mála á ákveðnum svæðum, sem líklega eru ríkinu betur þóknanleg. Ég kallaði eftir upplýsingum um heildarúttekt eða árangursmat á byggðakvótakerfinu, en það virðist engin slík úttekt hafa farið fram. Mér finnst það ótrúlegt í ljósi umfangsins og hve lengi þetta kerfi hefur verið við lýði,“ sagði Róbert.

Róbert nefnir einnig annað hagsmunamál saltfiskframleiðenda í Grindavík: „Það hefur heldur ekkert mat farið fram á áhrifum þess að banna notkun fjölfosfata í saltfiskvinnslu á Íslandi. Íslenskir saltfiskframleiðendur hafa notað þetta hjálparefni í um 10 ár, með þeim árangri að íslenskur saltfiskur er verðmætari en t.d. norskur saltfiskur. Efnið er nýtt í ýmsa aðra matvælavinnslu í dag. Í saltfiski dregur það úr þránun, þannig að hvíti liturinn heldur sér betur og fiskurinn verður verðmætari. Efnið skolast að langmestu leyti úr fiskinum fyrir notkun, þannig að efnið er ekki aukaefni heldur hjálparefni við vinnslu“.

Róbert sagðist vonast til þess að þessi fundur væri fyrsta skrefið í auknu upplýsingaflæði og samskiptum milli Suðurnesja og ríkisins um sjávarútvegsmál. Sjávarútvegur er stærri atvinnuvegur á Suðurnesjum en margir gera sér grein fyrir og mikilvægt fyrir heimamenn að hlú að honum og skapa góð rekstrarskilyrði.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!