Óhætt er að segja að karlalið Grindavíkur hafi dottið í lukkupottinn þegar dregið var í undanúrslitum bikarkeppni KKÍ í dag en andstæðingar liðins verða Haukar og fer leikurinn fram á útivelli. Í hinni rimmunni mætast KR og Tindastóll og því bíða margir spenntir að sjá hvort við fáum drauma bikarúrslitaleik Grindavíkur og KR.
Haukar eru í 5. sæti úrvalsdeildar með 12 stig en Grindavík í 2. sæti með 20.
Leikið verður helgina 5.-6. febrúar en úrslitaleikirnir fara fram í Laugardalshöllinni 19. febrúar og verða í beinni útsendingu á RÚV.