Sjónvarpsþáttur um kraftamótið Sterkasti maður á Íslandi sem haldið var á Sjóaranum síkáta síðasta sumar, verður sýndur á Ríkissjónvarpinu í kvöld kl. 23:00 (ellefu). Þetta var gríðarlega spennandi og skemmtilegt mót sem tókst virkilega vel. Jafnframt verða sýndar svipmyndir frá bæjarhátíðinni Sjóaranum síkáta inni á milli kraftakeppninnar.