„Námið hjá Somu uppfyllti væntingar mínar og rúmlega það. Soma er sérlega fær kennari og hefur gott lag á því að gera flókið námsefni einfalt og erfiðar aðstæður viðráðanlegar. Ég hefði t.d. gjarnan viljað læra stærðfræði hjá henni sem barn því hún opnaði mér alveg nýja sýn á að kenna hana," segir Ásta Birna þroskaþjálfi og sérkennari sem hefur verið valinn Grindvíkingur ársins 2010 fyrir ótrúlega eljusemi og dugnað við að búa syni sínum Arnóri Frey Arnarsyni betra líf en hann er einhverfur.
Ásta Birna fór ásamt syni sínum Arnóri Frey Arnarsyni til Texas í upphafi síðasta árs við nám í skóla hinnar indversku Somu Mukhopadhyay. Hún hefur þróað svokallaða RPM aðferð við meðferð á einhverfu sem örvar einhverf börn þannig að þau fara að svara áreiti og læra að tjá sig smám saman sem hefur skilað góðum árangri hjá Arnóri Frey. Ásta Birna var lærlingur hjá Somu á meðan Arnór Freyr var nemandi við skólann.
„Í upphafi var ég mjög upptekin af tjáningarhluta aðferðarinnar þ.e. hvernig Somu tekst að fá nemendurna til að svara sér eftir ýmsum leiðum t.d. með því að benda á stafaspjöld eða velja milli tveggja eða fleiri valmöguleika. Seinna lærði ég að það er í raun mun magnaðra að fylgjast með þvi hvað það gerir mikið fyrir nemendurna að fá að læra um það sem jafnaldrar þeirra eru að læra um, samspil okkar við umhverfi okkar, náttúruna og söguna. Það er alveg magnað þegar maður finnur nemandann átta sig á því að maður hefur fulla trú á færni hans og kennslustundin snýst um það að kenna námsefnið í stað þess að prófa og meta nemandann," segir Ásta Birna.
RPM-kennsluaðferðin gengur út á að það taka mið að ólíkri skynjun fólks með einhverfurófsraskanir. Í stað þess að breyta og móta hegðun sem bregður út af norminu þá er leytast við að skilja og bera virðingu fyrir hvernig nemandinn upplifir umhverfi sitt oft á annan hátt. Í því liggur þessi góði árangur sem næst með nemandann.
Yndisleg dvöl í Texas
„Dvölin í Austin, Texas var yndisleg. Austin er höfuðstaður Texas-ríkis og fjórða stærsta borgin í Texas. Í borginni búa um 1,5 miljón manns en maður upplifði sig ekkert endilega vera í stórborg þar sem við bjuggum í hverfi utan við borgina nánast út í sveit í yndislegu umhverfi. Austin er ekki þessi dæmigerði ,,Texasbær‘‘ ef hægt er að komast svo að orði. Háskólinn í borginni setur sterkan svip á borgina og allt mannlífið þar. Borgin er stundum kölluð Silicon hills (sílikon hæðir) þar sem þekkt tæknifyrirtkæki hafa mikilvægar starfstöðvar eins og IBM, Apple og Samsung. Það er mikil náttúrufegður í Austin og m.a. rennur stöðuvatn í gegnum alla borgina," segir Ásta Birna.
Hún kunni ekkert sérstaklega vel við það að vera útlendingur í hálft ár. „Það var mikil mismunun í gangi ef maður hafði ekki bandaríska kennitölu eða skilríki. Ég leigði mér þvottvél og þurrkara og tilboðin sem boðið var uppá voru ekki fyrir ,,útlendinga‘‘. Einnig þurfti ég að póstleggja alla reikninga því þar sem ég var útlendingur gat ég ekki greitt þá rafrænt. Þetta var heilmikið fyrirtæki en gekk samt allt ótrúlega vel. Heimamenn voru mjög hrifnir af því að kynnast eða hitta Íslendinga og við vorum oft stoppuð m.a á kassa í Wallmart og spurð hvaðan við værum og eins hvað væri að frétta af eldgosinu í Eyjafjallajökli."
Erfiðast að vera lengi frá dótturinni
Að sjálfsögðu reyndi fjarveran verulega á fjölskylduna. Ásta Birna og Arnór Freyr voru í hálft ár í Bandaríkjunum ásamt systur Ástu Birnu sem var þeim til aðstoðar en eiginmaður Ástu Birnu, Örn Eyjólfsson og dóttir þeirra, urðu eftir á Íslandi á meðan. Þá varð Ásta Birna ólétt skömmu áður en hún fór út.
„Það erfiðasta við þetta allt saman var að þurfa að vera lengi frá 7 ára dóttur minni. Þegar komið var í ljós að ég færi í þessa ferð þá minnkaði ég við mig vinnu til að geta verið meira með henni um haustið. Ég fékk líka góðar vinkonur til að njósna um hana í skólanum fyrir mig og að sjá til þess að allt væri í lagi. Maðurinn minn þurfti að vera kominn til vinnu fyrir sjö á morgnanna þannig að Þórdís tengdamamma og bara öll fjölskyldan stóð eins og klettur í þessu öllu saman með okkur. Það var mjög sérstakt hvernig maðurinn minn nánast missti af megin parti meðgöngunnar en ég var bara á fyrsta þriðjung meðgöngunar þegar ég fór út. Ég fór ein í flestar skoðanir, t.d. í fyrsta stóra sónarinn en Gerður systir mín kom með mér þegar Arnór var í skólanum. Hún kom með okkur Arnóri Frey út og þetta hefði ekki gengið svona vel án hennar hjálpar," segir Ásta Birna.
Gott að heyra hljóðin frá boltanum
En hverju hefur RPM aðferðin breytt varðandi Arnór Frey?
„Við sjáum miklar og jákvæðar breytingar hjá Arnóri Frey. Hann er yfir höfuð mun rólegri og í dag getum við tekið hann með okkur á staði sem við gátum ekki áður. Hann sagði okkur það í einum tímanum hjá Somu að hann hefði gaman að því að horfa á körfubolta og þætti gott að heyra hljóðin sem kæmu frá boltanum. Hann sagðist líka hafa gaman af því að horfa á fótbolta en líkaði ekki alltaf hávaðinn þar, sérstaklega ekki í sjónavarpinu. Við héldum að hann hefði engan áhuga á íþróttum þar sem hann héldi alltaf yfir eyrun þegar pabbi hans væri að horfa á fótbolta í sjónvarpinu. Við lærðum að hann er oft að hlusta á okkur af athygli þó að hann sé ekki að horfa á okkur á sama tíma og eins lærðum við að skilja ýmislegt sem hann gerir sem áður var okkur ráðgáta.
Hann var smá óöruggur á tungumálinu til að byrja með en það kom mjög fljótt. Skólasálfræðingurinn hans og talmeinafræðingurinn voru í raun mjög hissa á að hann var að sýna sömu getu á erlendu tungumáli og stóð í pappírunum hans að gæti á íslensku. Hann byrjaði nokkuð vel hjá Somu en átti síðan erfitt tímabil þar sem hann varð mjög kvíðinn og stressaður. Hann komst síðan yfir það og hreinlega blómstraði í kennslustundunum hjá Somu. Hún kenndi honum um allt milli himins og jarðar m.a. að búa til sögur. Þær urðu alltaf flottari og flottari hjá honum. Þær fjölluð oft um frosk og seinna sýndi hann mér O-vodaphone froskinn góða og þá áttaði ég mig á því hvaðan allt þetta froskatal kom.
Ég hef ekki enn náð honum eins langt og Soma en hann sýnir framfarir jafnt og þétt. Um daginn vorum við að skoða myndaalbúm og ég bað hann um að segja mér hverjir væru á myndunum og hann réði vel við það þegar kom að mynd af honum bjóst ég við að hann stafaði ARNÓR eins og venjulega en hann skrifaði ÉG. Hann ræður vel við að pikka inn öll dagatölin sín sjálfur og ef mikið liggur við þá reynir hann að skrifa sjálfur sem er alltaf að ganga betur og betur. Við keyptum handa honum I-pod touch úti og hann ræður við að skrifa ýmislegt í hann. Stafirnir lenda ekki alltaf á réttum stöðum en oftast eru allir stafirnir í orðunum til staðar.
Hann er mjög vel með á nótunum, finnst t.d. gaman að láta lesa fyrir sig bækur sem skrifaðar eru fyrir hans aldurshóp og hefur mjög sjálfstæðan tónlistarsmekk. Þessa stundina er Friðrik Dór í miklu uppáhaldi. Hann skilur allt sem sagt er við hann og ástæðan fyrir því að það koma upp færri kvíðaköst og erfiðleikar eru að við tölum meira við hann og útskýrum hlutina betur en við gerðum. Einnig fær hann núna tækifæri til að læra um allt milli himins og jarðar þegar við lærum saman," segir Ásta Birna.
Hlakka til að útfæra RPM kennsluna
Hún er núna heima í fæðingarorlofi með 5 mánaða gamallri dóttur sinni. Hún hefur þó aðeins komið að ráðgjöf og kennslu meðfram því bara rétt til að halda sér í þjálfun. Það hefur gengið mjög vel.
„Það eru forrétindi að fá að kynnast öllum þeim frábæru nemendum og fjölskyldum í gegnum þetta allt saman bæði hér heima og eins ytra. Ég held aftur til minnar vinnu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja í haust og hlakka mikið til að útfæra RPM kennsluna þar. Ég mun einnig koma að ráðgjöf og kennslu nemenda sem ekki eru í fjölbrautaskólanum eins og við verður komið."
Að lokum vildi Ásta Birna koma á framfæri kæru þakklæti fyrir þessa óvæntu tilnefningu. Eins vill hún þakka öllum sem fylgdust með þeim þegar þau vorum úti og hafa stutt þau og hvatt áfram.