Grindavík í Útsvari í kvöld

  • Fréttir
  • 7. janúar 2011

Önnur umferð í spurningaþætti Ríkissjónvarpsins, Útsvari, hefst í kvöld kl. 20:35. Grindavík verður í sviðsljósinu og mætir öflugu liði Akureyar.  Keppendur Grindavíkurbæjar eru sem fyrr Daníel Pálmason, Agnar Steinarsson og Margrét Pálsdóttir. Þau hittust í gær og borðuðu saman galdrasúpu og segjast full af orku fyrir kvöldið.

Grindavík tryggði sér sæti í 2. umferð umferð Útsvars, spurningakeppni Ríkissjónvarpsins, með því að leggja Fjarðabyggð að velli 78-77 í æsispennandi og framlengdri keppni. Þótti þetta skemmtilegasti þáttur vetrarins. 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir