Grindvíkingurinn Anna Sigríður Sigurjónsdóttir er tilnefnd af vefnum www.hlaup.is sem hlaupakona ársins. Hún er ein af sex konum sem eru tilnefndar. Í umsögn um hana segir: ,,Anna Sigríður Sigurjónsdóttir, 49 ára, fyrir að hafa lokið 100 km hlaupi á milli Madrídar og Segovia á 16:27:49 í byrjun október eftir að hafa barist við krabbamein árið 2009."
Anna Sigríður hljóp þessa vegalengd á Spáni ásamt Christine Bucholz. Fréttir og viðtöl við þær um þetta hlaup má lesa á Grindavíkurnefnum hér og hér.
Þetta er í annað skipti sem hlaup.is stendur fyrir vali á langhlaupara ársins, bæði í karla- og kvennaflokki. Þá er einkum verið að horfa til afreka í götu- og utanvegahlaupum. Afrek er afstætt, getur verið góður tími miðað við aldur, óvenjulegt verkefni, þrautseigja og kjarkur eða hvaðeina sem hægt er að meta til viðurkenningar.
Mikill fjöldi tilnefningar til langhlaupara ársins 2010 bárust og voru samtals 37 hlauparar tilnefndir. Af þeim valdi valnefnd í þetta skiptið 6 konur og 6 karla sem mynda endanlegan lista hlaupara sem kjósa á um. Það val var ekki auðvelt, því margir af þeim hlaupurum sem tilnefndir voru hafa hver á sinn hátt unnið góð afrek og/eða sýnt mikla þrautseigju á árinu sem er að líða.
Til að velja úr tilnefningum þeim sem bárust og taka þátt í endanlegu vali til jafns við atkvæði hlaupara, voru nokkrir þekktir aðila úr röðum langhlaupara beðnir að skipa valnefnd með umsjónarmanni hlaup.is.
Valnefndina skipa Torfi Helgi Leifsson umsjónarmaður hlaup.is, Sigurður P. Sigmundsson langhlaupari og þjálfari, Gunnar Páll Jóakimsson þjálfari og fyrrum þjálfari Skokkhóps ÍR, Erla Gunnarsdóttir þjálfari Skokkhóps Fjölnis í Grafarvogi og Margrét Elíasdóttir þjálfari Hlaupasamtaka Lýðveldisins.
Sjá nánar á hlaup.is