Nú er komið að því að rifja upp það helsta sem gerðist í Grindavík árið 2010. Hér getur að líta fyrri hluta annálsins, frá janúar til júní. Eins og sjá má að neðan var ýmislegt um að vera í bænum á þessu ári eins og t.d. fjölbreytt mannlíf, menningarvika, Sjóarinn síkáti, íþróttir, sjávarútvegur, kosningar og fleira. Þessi upprifun er meira til gamans gerð og því miður var ekki hægt að koma öllu fyrir.
JANÚAR
KRÝSUVÍKURKIRKJA BRANN
Krýsuvíkurkirkja brann til kaldra kola aðfararnótt 2. janúar en Slökkvilið Grindavíkur var kallað út laust eftir klukkan tvö. Að sögn slökkviliðsmanna gekk ferðin að kirkjunni ágætlega á nýja slökkvibílnum en þangað var ekki fært fyrir venjulega bíla og tók slökkviliðið um hálftíma að komast á staðinn. Þegar að var komið var kirkjan nánast brunnin til grunna og var slökkt í því sem hægt var að slökkva. Ekki er vitað um eldsupptök en jafnvel talið að kveikt hafi verið í kirkjunni.
FYRSTI SKÓLADAGUR Í HÓPSSKÓLA
Nýr grunnskóli í Grindavík, Hópsskóli, tók formlega til starfa 4. janúar. Þá mættu starfsfólk og nemendur til starfa en flestir foreldrar fylgdu börnum sínum alveg inn í skólann. Nemendur í Hópsskóla þessa fyrstu önn eru í 1. og 2. bekk. Maggý Hrönn Hermannsdóttir skólastjóri heilsaði öllum nemendunum og foreldrum þeirra með handabandi.
DAVÍÐ OG SIGURÐUR MENN ÁRSINS
Slökkviliðsmennirnir Davíð Arthur Friðriksson og Sigurður Halldórsson hafa verið valdir Grindvíkingar ársins fyrir frækilegt björgunarafrek sitt þann 30. desember síðastliðinn þegar þeir björguðu lífi Grétars Einarssonar sem fékk hjartaáfall á knattspyrnumóti í íþróttahúsi Grindavíkur. Heimasíðan leitaði til 15 einstaklinga í Grindavík til að velja Grindvíking ársins og fengu Davíð og Sigurður langflest atkvæði hjá álitsgjöfunum.
NÝÁRSBARNIÐ FRÁ GRINDAVÍK
Nýársbarnið á Suðurnesjum reyndist vera Grindvíkingur þetta árið. Þann 4. janúar kom myndarleg stúlka í heiminn sem mældist 47 sentimetrar við fæðingu og vigtaði 3.090 gr. Foreldrarnir eru Guðrún Ólöf Björnsdóttir og Arnar Freyr Héðinsson og voru þau afar stolt a dótturinni, líkt og stóri bróðir, Óðinn Fannar Guðrúnarson.
ÞRETTÁNDAGLEÐI Í EINMUNA VEÐURBLÍÐU
Þrettándagleði Grindvíkinga fór fram í eindæma veðurblíðu og var þátttaka með miklum ágætum. Eftir andlitsmálun í Kvennó var haldið að Saltfisksetrinu þar sem álfakóngur og drottning sungu þrjú lög. Jón Ágúst Eyjólfsson og Róshildur Björnsdóttir voru í þeim hlutverkum og stóðu sig frábærlega vel. Þá mættu jólaveinar á fjórhjóli og skemmtu krökkunum með söng og glens og héldu síðan til síns heima í Þorbirni. Þá var hin árlega búningakeppni og að endingu bauð Björgunarsveitin Þorbjörn upp á frábæra flugeldasýningu.
STIGAMET PÁLS AXELS
Stigin 54 sem Páll Axel Vilbergsson skoraði í leik gegn Tindastóli 10. janúar sl. er stigamet hjá Íslendingi í efstu deild en metið átti Marvin Valdimarsson eða 51. Páll Axel hefur því skorað flest stig allra Íslendinga í venjulegum leiktíma í efstu deild.
GYLFI OG ELÍAS KYÞOKKAFULLIR
Grindvíkingar komu töluvert við sögu þegar hlustendur Rásar 2 kusu kynþokkafyllsta karlmann landsins á bóndadaginn. Handknattleiksmaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson var valinn sá kynþokkafyllsti en Grindvíkingar urðu í 2. og 4. sæti. Í öðru sæti var Gylfi Arnar Ísleifsson, lyftaramaður hjá Vísi í Grindavík. Vísismenn hafa greinilga kynþokkann í lagi en fyrir nokkrum árum var Sveinn Guðjónsson í Vísi valinn kynþokkafyllsti maður landsins. Annar Grindvíkingur, Elías Magnús Rögnvaldsson, starfsmaður Þorbjarnar og liðsmaður Slökkviliðs Grindavíkur varð í 4. sæti. Alls fengu 74 karlmenn atkvæði í kosningunni.
FYRSTA LÖNDUN Á NÝJU BRYGGJUNNI
Jóhanna Gísladóttir ÍS 7 sem Vísir hf. í Grindavík gerir út, varð fyrsti báturinn til þess að landa á nýju bryggjunni við Norðurgarð. Um borð í Jóhönnu Gísladóttur voru 80 tonn af blönduðum afla. Löndunin gekk vel undir styrkri stjórn Ágústs Ingólfssonar.
FEBRÚAR
HÁKARLASKURÐUR
Frystitogarinn Hrafn Sveinbjarnarson kom til Grindavíkurhafnar í byrjun febrúar. Í afla skipsins var myndarlegur hákarl sem rak í netin. Óskar Sævarsson hjá Saltfisksetrinu tók að sér hákarlaskurð á bryggjunni. Skorið var í beitur til verkunar fyrir fyrirtæki á Vopnafirði.
GUÐMUNDUR EFSTUR
Guðmundur Pálsson, bæjarfulltrúi, fékk flest atkvæði og varð efstur í prófkjöri Sjálfstæðismanna fyrir bæjarstjórnarkosningarnar. Vilhjálmur Árnason varð annar og Magnús Már Jakobsson þriðji en hann keppti við Guðmund um efsta sætið.
LÍÐAN BARNA OG UNGLINGA
Þriðjudaginn 9. febrúar var kynningarfundur, í grunnskólanum, á niðurstöðum rannsókna um hagi og líðan grunnskólabarna í Grindavík. Helstu niðurstöður úr rannsókninni eru þær að íþrótta- og tómstundaiðkun unglinga er töluverð og sem dæmi má nefna að 77% drengja og 70% stúlkna í 9. og 10. bekk æfa íþróttir með íþróttafélagi einu sinni í viku eða oftar. Er um töluverða fjölgun að ræða frá árinu 2008 og má örugglega skýra þessa aukningu með fríum æfingagjöldum hérna í Grindavík.
UMFG 75 ÁRA
Ungmennafélag Grindavík fagnaði 75 ára afmæli sínu þann 3. febrúar síðastliðinn. Haldið var upp á afmælið með stærsta afmælishófi í sögu Grindavíkur síðasta laugardagskvöld þar sem rúmlega 400 manns mættu í sannkallaða þorra- og afmælishátíð UMFG í íþróttahúsinu þar sem var glatt á hjalla. Afmælishátíðin tókst í alla staði ljómandi vel undir röggsamri stjórn veislustjórans skemmtilega Freys Eyjólfssonar.
EYSTEINN FLUTTI RÆÐU UM ALBERT
Laugardaginn 14. febrúar gær var afhjúpuð stytta til minningar um Albert Guðmundsson en styttan stendur fyrir utan höfuðstöðvar KSÍ. Það var Albert Guðmundsson, langafabarn Alberts, sem afhjúpaði styttuna. Við þetta tilefni flutti Eysteinn Húni Hauksson, yfirþjálfari yngri flokka Grindavík, ávarp þar sem hann rakti knattspyrnuferil Alberts sem var fyrsti íslenski atvinnumaðurinn í knattspyrnu. Eysteinn hefur undanfarin misseri viðað að sér heimildum um feril Alberts og er með bók í bígerð.
EYRÚN ÖSP VANN SÖNGVAKEPPNI FSS
Söngkeppni Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Hljóðneminn, var haldin á sal skólans í febrúar. Sextán atriði voru í keppninni, sem þótti glæsilegri en nokkru sinni fyrr, en troðfullt var út úr dyrum. Grindavíkurmærin Eyrún Ösp Ottósdóttir bar sigur úr býtum en hún söng lagið „Hear You Me" með hljómsveitinni Jimmy Eat World og verða því fulltrúar Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Söngkeppni Framhaldsskólanna á Akureyri.
GRINDAVÍK TAPAÐI BIKARÚRSLITALEIKNUM GEGN SNÆFELLI
Bikarinn rann Grindavík úr greipum þegar liðið tapaði í fyrsta sinn úrslitaleik í Laugardalshöll. Grindavík tapaði fyrir Snæfelli 92-81 í frábærum leik þar sem Snæfell sigldi fram úr með góðum lokaspretti. „Við gerðum ekki það sem við lögðum upp með og þess vegna er þetta mjög svekkjandi. Maður getur aldrei verið sáttur með að tapa þegar frammistaðan er ekki betri en hún var í þessum leik," sagði Þorleifur Ólafsson leikmaður Grindavíkur við Vísi eftir leikinn.
STAKKAVÍK MEÐ NÝJUNG Í FERÐAÞJÓNUSTU
Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Stakkavík ehf. í Grindavík ætlar að ryðja nýjar brautir í ferðaþjónustu með vorinu með því að bjóða ferðamönnum upp á að kynna sér fiskvinnsluna í fyrirtækinu og setjast síðan að snæðingi í matsalnum og gæða sér á dýrindis fiskréttum.
GRINDAVÍK EIGNAST LANDSLIÐSKONU Í KNATTSPYRNU
Þau sögulegu tímamót urðu 24. febrúar að Grindavík eignaðist A-landsliðskonu í knattspyrnu í annað sinn - en í fyrsta sinn þar sem leikmaðurinn spilar jafnframt með Grindavík í úrvalsdeild. Eínborg Ingvarsdóttir kom inn á sem varamaður á 85. mínútu þegar Ísland tapaði fyrir Bandaríkjunum 2-0 á æfingamóti á Algarve. Fyrsta landsliðskona Grindavíkur, Ólína Viðarsóttir, var í byrjunarliði Íslands í gær sem bakvörður. Grindavík átti því í raun tvo fulltrúa í landsliðinu - í fyrsta skipti í sögunni.
MARS
BIKARMEISTARI Í UNGLINGAFLOKKI
Grindavík varð bikarmeistari í unglingaflokki kvenna í körfubolta eftir tveggja stiga spennusigur gegn Haukum, 64-62, í úrslitaviðureign liðanna í Ljónagryfjunni í Njarðvík í æsispennandi leik. Íris Sverrisdóttir var valin besti maður leiksins en hún skoraði 19 stig, hirti 6 fráköst og stal boltanum fjórum sinnum. Alma Garðarsdóttir skoraði 20 stig
NÆST FLEST FISKISKIP SKRÁÐ Í GRINDAVÍK
Alls voru skráðir 70 fiskiskip skráð í Grindavík í lok síðasta árs og er Grindavík í 2. sæti á landsvísu. Reykjavík er heimahöfn flestra fiskiskipa eða alls 88. Í Reykjavík voru einnig flestir opnir fiskibátar með heimahöfn, alls 37, en 36 bátar áttu heimahöfn í Stykkishólmi. Flest vélskip áttu heimahöfn í Grindavík eða 52 skip.
BRYNDÍS EFST HJÁ FRAMSÓKN
Bryndís Gunnlaugsdóttir varð í 1. sæti í opnu prófkjöri Framsóknarfélags Grindavíkur sem fram fór í gær. Páll J. Pálsson varð í 2. sæti, Þórunn Erlingsdóttir í því þriðja og Hilmar Helgason í því fjórða. Allt er þetta nýtt fólk á lista.
BJARNI ÞÓR RÁÐINN VALLARSTJÓRI
Bjarni Þór Hannesson var í gær ráðinn vallarstjóri á Húsatóftavelli hjá Golfklúbbi Grindavíkur. Bjarni skrifaði undir samning til loka október á þessu ári með ákvæði um áframhald á starfi hjá klúbbnum ef vel gengur. Bjarni, sem tekur við starfinu á Húsatóftavelli af Guðjóni Einarssyni, er sonur Hannesar Þorsteinssonar golfvallarhönnuðar, en verið er að stækka Húsatóftavöll í 18 holur eftir hönnun Hannesar.
GÁFU HJARTASTUÐTÆKI
Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur kom færandi hendi í íþróttahúsið en félagið gaf hjartastuðtæki. Magnús Sigurðsson, formaður Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur og Kári Ölversson meðstjórnandi færðu Hermanni Guðmundssyni yfirmanni íþróttamannvirkja bæjarins tækið sem Magnús sagði að þyrfti vonandi aldrei að nota!
Slysavarnadeildin Þórkatla gaf UMFG hjartastuðtæki að gjöf á aðalfundi deildarinnar. Aðalstjórn UMFG ákvað að láta knattspyrnudeildina hafa tækið og verður það til taks í fjölnota íþróttahúsinu Hópinu og á Grindavíkurvelli yfir sumartímann.
HORMOTTUR ERU MÁLIÐ
Krabbameinsfélag Íslands lagði áherslu á fræðslu og umræður um karlmenn og krabbamein í marsmánuði. Í því sambandi hefur félagið hrundið af stað táknrænni herferð fyrir yfirvaraskeggi hjá körlum: Mottu mars! Strákarnir á Hrafni Sveinbjarnarsyni GK 255, allir 25, hafa verið duglegir að safna mottu og eru þeir í 3. sæti á landsvísu í liðakeppni.
,,Tökum allar áskoranir sem okkur berast alvarlega og skorum jafnframt á alla vinnandi menn að gera slíkt hið sama. Hormottur eru málið 2010!!!" segja strákarnir á Hrafni Sveinbjarnarsyni á heimasíðu átaksins.
STEYPUKAPPHLAUP Í IÐNAÐARHVERFINU
Mikið var um að vera í iðnaðarhverfinu í morgun þegar steypubílar voru þar um víðan völl en steyptar voru plötur í tvö mannvirki í blíðskapar veðri. Annars vegar var verið að steypa plötu í nýja fiskverkun austan við Stakkavík en húsnæðið er um 930 fermetrar. Verktaki er HH smíði. Hins vegar var verið að steypa plötu fyrir verkstæði og geymsluhúsnæði sem er um 490 fermetrar við Staðarsund. Verktaki er Grandsmíði í Grindavík.
DORRIT FITJAÐI UPP MEÐ HÚSGANGSFITI
Dorrit Moussaieff forsetafrú var sérstakur gestur við setningu menningarviku Grindavíkur sem sett var við hátíðlega athöfn í Saltfisksetri Íslands 13. mars. Dorrit mætti með prjónana og plötulopann með sér og fitjaði upp með húsgangsfiti, alls 66 lykkjur, þær fyrstu í heimsmetstilraun í að prjóna lengsta trefil í heimi. Dorrit fékk góða hjálp hjá Benný Ósk Jökulsdóttur prjónakonu sem átti hugmyndina að þessari heimsmetstilraun og er stefnt að því að prjóna 58 km langan trefil.
ÓMAR SMÁRI OG SALTIFISKSETRIÐ FENGU MENNINGARVERÐLAUNIN
Við setningu menningarviku voru afhent menningarverðlaun Grindavíkur í fyrsta sinn. Þau komu í hlut Saltfiskseturs Íslands í Grindavík og Ómars Smára Ármannssonar fyrir verkefni sitt, örnefna- og minjakort fyrir einstök svæði í Grindavík undanfarin misseri.
GLÆSILEG MENNINGARVIKA
Menningarvika Grindavíkurbæjar var haldin í annað sinn og tókst hún með miklum glæsibrag. Mikið var um að vera alla vikuna víðs vegar um bæinn eins og tónlist, sýningar og uppákomur, að ógleymdu kútmagakvöldi og konukvöldi.
10. PE VANN SPURNINGAKEPPNINA
Það var rífandi stemmning á sal þegar liðin úr 10. PE og 9. V kepptu til úrslita í spurningakeppni unglingastigsins í grunnskólanum. Keppnin var mjög jöfn framan af en 10. PE skrefinu á undan. Í síðustu spurningunum náði náði 10.PE að auka forystu sína og sigra 9. V með 36 stigum gegn 19. Það má sannarlega hrósa áhorfendum sem lögðu sig mikið fram við að gera keppnina sem veglegasta. Sumir voru málaðir frá toppi til táar og einstaka kennari skreytti sig í litum síns liðs
SJÖ VERÐLAUN Á ÍSLANDSMÓTINU Í JÚDÓ
Júdóhefðin er sterk í Grindavík. Í mars fóru fram Íslandsmót U15 og U13 á Akureyri og uppskar Grindavík 3 silfur. Það voru Marcin Ostrowski í BD-42, Smári Stefánsson í BD-46 og Heiðrún Pálsdóttir í BS-40. Einnig var keppt í U20 og U17 þar sem Sigurpáll Albertsson sigraði í P-81, Sólon Rafnsson varð annar í UD-55, Guðjón Sveinsson 3 í UD-60. Reynir Berg Jónasson var einnig Íslandsmeistari í sínum flokki.
ÓLAFUR HRAFN ÍSLANDSMEISTARI Í KRAFTLYFTINGUM
Grindvíkingurinn Ólafur Hrafn Ólafsson varð Íslandsmeistari annað árið í röð í 90 kg flokki í kraftlyftingum. Hann bar sigur úr býtum bæði í unglingaflokki og opnum flokki og sló þrjú Íslandsmet sem hann átti sjálfur. Ólafur keppti fyrir hönd Massa í Njarðvík sem varð Íslandsmeistari.
SENDIHERRAR NORÐURLANDANNA Í HEIMSÓKN
Sendiherrar Norðurlandanna á Íslandi ásamt færeyska konsúlnum heimsóttu Grindavík. Tilgangur heimsóknarinnar var að kynna sér íslenskan sjávarútveg. Sendiherrarnir komu við í Saltfisksetrinu, fengu sér að borða fisk í Salthúsinu og heimsóttu svo Vísi.
SJÓNVARP GRINDAVIK.IS
Nú er rétt um ár síðan nýrri heimasíðu Grindavíkurbæjar var hleypt af stokkunum. Hún hefur verið í stöðugri þróun síðan en henni er ætlað að vera upplýsingatorg fyrir íbúa Grindavíkurbæjar, þeirra sem vilja sækja sér upplýsingar um bæinn okkar og fyrir ferðamenn. Nýjasta viðbótin við heimasíðuna er Sjónvarp grindavik.is en nú verður boðið upp á sjónvarpsfréttir þegar tækifæri gefst til en þetta hefur verið nokkurn tíma í undirbúningi.
FIMM STJÖRNU DÚKKULÍSA
Grunnskóli Grindavíkur hélt árshátíð sína að vanda þar sem leikritið Dúkkulísa var frumsýnt í leikstjórn Víðis Guðmundssonar. Leikritið er eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur leikkonu, leikskáld og rithöfund, sambýliskonu Víðis. Árshátíðarleikritið er skemmtileg og ómissandi hefð í Grindavík og mikill hvalreki að fá grindvíska atvinnumenn eins og Víði og Berg Ingólfsson á sínum tíma til þess að leikstýra. Vonandi fær Grindavík áfram að njóta krafta Víðis. Honum og krökkunum er óskað til hamingju með stórskemmtilega sýningu.
ÞORBJÖRN HF. HLÝTUR VARÐBERGIÐ
Þorbjörn hf. hlaut forvarnarverðlaunin Varðbergið. Verðlaunin hlýtur árlega viðskiptavinur Tryggingamiðstöðvarinnar (TM) sem þykir skara fram úr á sviði forvarna gegn óhöppum og slysum. Sigurður Viðarsson, forstjóri TM heimsótti Þorbjörn hf. og afhenti verðlaun og viðurkenningu og var það Gunnar Tómasson framkvæmdastjóri framleiðslu- og sölumála sem tók við verðlaununum fyrir hönd fyrirtækisins.
TVÖFALDUR SIGUR Í STÓRU UPPLESTRARKEPPNINNI
Grunnskóli Grindavíkur gerði sér lítið fyrir og vann tvöfalt í Stóru upplestrarkeppninni en lokahátíðin fór fram í Gerðaskóla í Garði í gær en keppnin er fyrir nemendur í 7. bekk. Margrét Rut Reynisdóttir varð í 1. sæti og Valgerður María Þorsteinsdóttir í 2. sæti en báðar eru þær nemendur í 7. S í grunnskóla Grindavíkur.
12,2% BÆJARBÚA TÓKU ÞÁTT Í LÍFSHLAUPINU
Íþrótta- og æskulýðsnefnd Grindavíkurbæjar afhenti verðlaun til þeirra fyrirtækja og stofnana í Grindavík sem tóku þátt í Lífshlaupinu á dögunum. Alls tóku 14 fyrirtæki þátt með 29 lið og 347 einstaklinga, sem þýðir að 12,21% bæjarbúa tóku þátt í þessu skemmtilega verkefni. Grindavík varð í 3. sæti á landsvísu en í fyrstu þremur sætunum voru frekar fámennir hreppar.
GLÆSILEGUR ÁRANGUR Í STÆRÐFRÆÐIKEPPNI
Nemendur í grunnskóla Grindavíkur náðu frábærum árangri í stærðfræðikeppni Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem haldin var fyrir skömmu sem er fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk. Verðlaunaafhending fór fram í gær og átti grunnskólinn í Grindavík 5 verðlaunahafa af 9, þar af sigurvegarana bæði í 9. og 10. bekk. Verðlaunahafar úr grunnskóla Grindavíkur voru eftirfarandi:
Í 10. bekk stóð Gunnar Þorsteinsson uppi sem sigurvegari og Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir varð í 3. sæti. Þá varð Gísli Gunnarsson í 5.-10. sæti.
Í 9. bekk varð Guðjón Sveinsson sigurvegari og Hákon Ólafsson varð í 4. sæti.
Í 8. bekk urðu Magnús Ellertsson og Erla Þorsteinsdóttir jöfn í 2. til 3. sæti og Lára Lind Jakobsdóttir varð í 5. til 10. sæti.
7. FLOKKUR ÍSLANDSMEISTARI
7. flokkur drengja varð Íslandsmeistari í körfuknattleik um helgina. Þeir unnu KR í hreinum úrslitaleik um titilinn, 56-43. Miklir yfirburðir í fráköstum og barátta færði þeim sigurinn og eru þeir vel að þessu komnir. Þjálfarar liðsins eru körfuboltahjónin og gömlu körfuboltakempurnar Guðmundur Bragason og Stefanía Sigríður Jónsdóttir.
NÝTT HESTAMANNAFÉLAG STOFNAÐ
Hestmannafélagið Brimfaxi var stofnað þann 25. mars s.l. og var góð mæting á stofnfund félagsins í Salthúsinu. Mjög létt var yfir fundargestum og ánægja með að sjálfstætt hestamannafélag í Grindavík væri orðið að veruleika. Pétur Bragason var kjörinn fyrsti formaður félagsins.
BJÖRN ÍSLANDSMEISTARI Í SÍNUM FLOKKI Í TAEKWONDÓ OG JUI JITSU
Björn Lúkas Haraldsson varð Íslandsmeistari í sínum flokki í taekwondo en hann varð jafnframt fyrsti Íslandsmeistari deildarinnar. Glæsilegur árangur en Björn Lúkas er mikill baradagamaður því hann fékk silfurverðlaun í sínum aldursflokki á Íslandsmótinu í júdó.
Íslandsmót unglinga í bardagaíþróttinni jiu jitsu fór fram í lok apríl. Björn Lúkas keppti fyrir hönd Sleipnis í Keflavík í -78 kg flokki unglinga og varð Íslandsmeistari. Hann vann báðar sínar glímur mjög örugglega án þess að fá á sig stig.
MET TÚR
Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 sem Þorbjörn hf. gerir út, landaði 560 tonnum í Grindavík þann 29. mars síðastliðinn. Aflinn var blanda af þorski, ýsu, ufsa, karfa, grálúðu og gulllaxi. Verðmæti aflans var 135 milljónir króna og er það mesta verðmæti sem skipið hefur komið með úr einni veiðiferð en hún stóð í 30 daga.
APRÍL
G-LISTINN NÝTT FRAMBOÐ
Nýtt framboð lista Grindvíkinga var kynnt í byrjun apríl. Þrjú efstu skipa:
1. sæti Kristín María Birgisdóttir - stjórnmálafræðingur og meistaranemi í mannauðststjórnun
2. sæti Dagbjartur Willardsson - skrifstofumaður
3. sæti Lovísa Hilmarsdóttir - BA próf í hagfræði, heimspeki og stjórnmálafræði. Meistaranemi í Evrópufræðum
EFRI SIGLINGAVARÐARN LAGFÆRÐ
FERLIR, félagsskapur um útivist, umhverfi, sögu og minja á Reykjanesskaganum (sjá www.ferlir.is) tók að sér að lagfæra skemmdir, sem orðið höfðu á Efri-innsiglingarvörðunni við Hóp, en vörðurnar eru og hafa verið eitt af meginsérkennum Grindavíkur frá því þær voru hlaðnar sjófarendum inn í Hópið til leiðsagnar eftir að rás fyrir báta hafði verið grafin inn í það árið 1939.
LISTI SAMFYLKINGARINNAR SAMÞYKKTUR
Framboðslisti Samfylkingarfélags Grindavíkurlistans (S) til sveitastjórnarkosninga 29. maí nk. var samþykktur samhljóða. Þrír efstu:
1. Páll Valur Björnsson 47 ára. Háskólanemi og verkamaður
2. Marta Sigurðardóttir 23 ára. Meistaranemi í opinberri stjórnsýslu
3. Sigurður Kristmundsson 43 ára. Verslunarstjóri
GRINDAVÍKURBÆR KAUPIR SALTFISKSETRIÐ
Bæjarstjórn samþykkti að kaupa Hafnargötu 12a, Saltfisksetur Íslands, fyrir 160 milljónir króna. Saltfisksetrið hefur verið rekið sem sjálfseignastofnun. Saltfisksetrið var opnað í september 2002 en Grindavíkurbær ásamt fyrirtækjum í bænum lögðust á árarnar að reisa safnið sem jafnframt er upplýsingamiðstöð ferðamanna.
GRINDAVÍKURBÆR FYRSTA SVEITARFÉLAGIÐ MEÐ AUÐLINDASTEFNU
Auðlindastefna Grindavíkur var samþykkt formlega á fundi bæjarstjórnar í apríl. Grindavíkurbær er fyrsta sveitarfélagið á landinu sem gerir auðlindastefnu með þessum hætti. Auðlindir Grindavíkur eru um margt einstakar, hér er stórkostlegt land með jarðhita og miklar náttúruminjar. Áform eru uppi um nýtingu orku eins og sólarkísilvinnsla og metanólverksmiðja. Lykilatriði auðlindastefnunnar er að hér sé gott samspil nýtingar og náttúruverndar. Auðlindastefna sé fjárfesting til framtíðar.
FISKTÆKNISKÓLINN TEKUR TIL STARFA
Fisktækniskóli Suðurnesja í Grindavík var formlega opnaður við hátíðlega athöfn í Saltfisksetrinu. Miklar vonir eru bundnar við skólann sem markar ákveðinn tímamót. Skólinn hófst reyndar í mars þegar 30 nemendur hófu nám á grundvelli sérstaks átaks Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum. Það var samdóma álit þeirra sem tóku til máls við opnun skólans að löngu sé tímabært að hlúa að menntun við undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar. Fisktækniskólinn hefur vakið athygli og undirbúningur að stofnun svipaðrar stofnunar þegar hafinn á amk. tveimur öðrum stöðum á landinu.
7. S VANN SPURNINGAKEPPNI MIÐSTIGSINS.
Lokaviðureign spurningakeppni miðstigsins fór fram í dag. Mikil spenna var í loftinu og áhorfendur skiptust í tvo hópa og héldu stíft með sínu liði. Liðin sem leiddu saman hesta sínu voru 7.S og 5.P. Í liði 7.S voru Kristín Ragnheiður Eiríksdóttir, Margrét Rut Reynisdóttir og Valgerður Þorsteinsdóttir en í liði 5.P voru Haukur Arnórsson, Inga Bjarney Óladóttir og Nökkvi Már Nökkvason. 7.S stóð uppi sem sigurvegari að lokum og fékk bókina Örlög guðanna í viðurkenningarskyni.
HELGI JÓNAS TEKUR VIÐ KÖRFUBOLTANUM
Í lok apríl var Helgi Jónas Guðfinnsson ráðinn þjálfari karlaliðs Grindavíkur í körfubolta. Páll Axel Vilbergsson var kjörinn leikmaður ársins hjá karlaliðinu en Helga Hallgrímsdóttir hjá kvennaliðinu.
ÁHYGGJUR AF GRINDAVÍKURVEGI
Íbúafundur var haldinn um umferðaröryggismál í Saltfisksetrinu á vegum Grindavíkurbæjar en þetta er samstarfsverkefni við Umferðarstofu og sveitarfélögin á Suðurnesjum. Fram komu miklar áhyggjur af Grindavíkurvegi en þar fara um fjögurþúsund bílar á sólarhring enda stærsti ferðamannastaður landsins í land Grindavíkur. Vegurinn er of þröngur og illa farinn á köflum en þrátt fyrir það er mikill hraðakstur miðað við síðustu mælingar.
MAÍ
ÆVINTÝRAFERÐ TIL WEST HAM
Rúnar Sigurjónsson formaður unglingaráðs og Ægir Viktorsson þjálfari 3. og 4. flokks fóru í ævintýraferð til enska úrvalsdeildarliðsins West Ham. Þar kynntu þeir sér þjálfun hjá yngri liðum félagsins. Rúnar er forfallinn West Ham aðdáandi frá því í barnaæsku og þetta var einstakt tækifæri fyrir Ægi til að sjá hvernig West Ham byggir upp sína akademíu sem hefur getið af sér leikmenn á borð við Frank Lampard, Joe Cole, Rio Ferdinand og fleiri góða.
SELKÓPUR Í HEIMSÓKN Á LAUT
Það var mikill spenningur á leikskólanum Laut þegar foreldri kom með lítinn selkóp í heimsókn á leikskólann. Krakkarnir voru yfir sig hrifnir að fá þessa óvæntu heimsókn og veltu því mikið fyrir sér hvað hefði komið fyrir selkópinn en hann hafði flækst í neti. Selkópurinn var voðalega mikið krútt, krakkarnir skoðuðu hann fram og til baka og klöppuðu í bak og fyrir.
GRINDAVÍKURLIÐUNUM SPÁÐ 8. SÆTI
Í byrjun maí fór fram árlegur kynningarfundur á Pepsideild karla og kvenna í knattspyrnu. Margir bíða í ofvæni eftir spá forráðamanna, fyrirliða og þjálfara um lokastöðu liðanna í sumar. Samkvæmt þessum hávísindalegu vangaveltum var bæði karla- og kvennaliði Grindavíkur spáð 8. sæti.
BJÖRN LÚKAS NORÐURLANDAMEISTARI 15-16 ÁRA Í JÚDÓ
Grindvíkingurinn Björn Lúkas Haraldsson varð Norðurlandameistari 15-16 ára í -81 kg flokki en keppt var í Laugardalshöll. Björn Lúkas lagði Aron Gylfa Svavarsson í úrslitum. Sannarlega glæsilegur árangur hjá Birni sem er mikið efni. Þetta voru ekki einu verðlaunin hjá Grindvíkingum á mótinu því Reynir Berg Jónsson vann til bronsverðlauna í sínum þyngdarflokki.
FRAMBOÐSLISTI VINSTRI GRÆNNA
Vinstri grænir buðu fram lista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar. Þrír efstu skipuðu:
1. Garðar Páll Vignisson, Staðarvör 3, kennari
2. Guðný Sigfúsdóttir, Víðigerði 7, þroskaþjálfi
3. Steinþór Helgason, Staðarhraun 41, netagerðarmaður
SIGU RÚMA 100 KM
Unglingadeildin Hafbjörg stóð fyrir sigmaraþoni til þess að fjárafla fyrir landshlutamót unglingadeilda sem fram fer í Vestmannaeyjum í sumar. Í síðustu viku safnaði unglingadeildin áheitum í bænum og svo var byrjað á miðnætti aðfaranótt laugardags. Til stóð að síga 52 kílómetra á 24 klukkustundum en þar sem að krafturinn og dugnaðurinn í krökkunum var svo mikill var ákveðið að síga í 37 klukkustundir og náðist þannig að síga 100323 metra eða rétt rúmlega 100 kílómetra.
PAR 3 VÖLLUR OPNAÐUR VIÐ VIÐIHLÍÐ
Teigar og flatir voru slegnar á svokölluðu Rollutúni við Víðihlíð um miðjan maí. Stjórnarmenn Golfklúbbs Grindavíkur létu hendur standa fram úr ermum og settu sex holur víða um svæðið ásamt því að slá fyrrnefnda teiga og flatir.
JENS NORÐURLANDAMEISTARI MEÐ U17
U16 ára landslið Íslands í körfubolta varð Norðurlandameistari í körfubolta eftir öruggan sigur á Svíþjóð í úrslitaleik 78-64. Einn Grindvíkingur var í liði Íslands, Jens Valgeir Óskarsson. Hann lék í rúmar fjórar mínútur í úrslitaleiknum og skoraði 2 stig. Sannarlega glæsilegur árangur hjá strákunum.
BÆRINN KAUPIR LANDSPILDU OG JARÐHITARÉTTINDI Í SVARTSENGI
Grindavíkurbær hefur keypt 63 ha landspildu og jarðhitaréttindi í Svartsengi af HS Orku hf. fyrir 447 milljónir króna og jafnframt gert hagnýtingarsamning um náttúruauðlindir á svæðinu við fyrirtækið sem í staðinn greiðir auðlindagjald til bæjarins. Í júlí 2009 keypti Reykjanesbær landspildu í Svartsengi af HS Orku hf. auk þess að skrifa undir lóðarleigu- og hagnýtingarsamning um náttúruauðlindir á svæðinu. Eftir þríhliða viðræður HS Orku, Reykjanesbæjar og Grindavíkurbæjar ganga þessir samningar til baka og þess í stað er það Grindavíkurbær sem er kaupandi.
BJARNI MÁR NÝR FORMAÐUR UMFG
Bjarni Már Svavarsson var kjörinn formaður aðalstjórnar Ungmennafélags Grindavíkur á aðalfundi félagsins en hann tók við af Gunnlaugi Hreinssyni sem hætti eftir 15 ár. Gunnlaugur er þó ekki hættur alveg störfum fyrir UMFG því hann situr áfram í stjórninni sem gjaldkeri. Stjórnarmönnum UMFG var fækkað úr 7 í 5.
BERGUR Í INNKAUPAKERRU Í NETTÓ
Í maí sást til Grindvíkingsins Bergs Ingólfssonar leikara þar sem búið var að troða honum ofan í innkaupagrind í Nettó. Þegar betur var að gáð voru nokkrir landskunnir leikarar eins og Björn Thors og Ólafur Darri með honum ásamt myndatökuliði. Í ljós kom að þarna var verið að taka upp vinaauglýsingu fyrir Símann en þar hafa Bergur og félagar farið á kostum. Bergur er léttur og lipur og átti ekki í teljandi vandræðum með að setjast í innkaupakerruna þar sem hann sýndi sín óborganlegu svipbrigði.
ÁTTRÆÐ MEÐ GEISLADISK
Tónlistin hefur gengið eins og rauður þráður í gegnum allt mitt líf," segir Margrét Sighvatsdóttir úr Grindavík en hún heldur upp á áttatíu ára afmæli sitt í dag hvítasunnudag og tekur á móti gestum í Salthúsinu kl. 14:00 og eru allir velkomnir.
Af því tilefni hafa börn hennar látið útsetja og taka upp nokkur lög hennar á geisladisk sem valdir hljóðfæraleikarar flytja. Lögin hennar mömmu heitir diskurinn og kemur út á afmælisdaginn. Öll börn Margrétar syngja á disknum og tvær dótturdætur hennar.
TÓK TAKKASKÓNA FRAM YFIR STÚDENTSHÚFUNA
Elínborg Ingvarsdóttir leikmaður knattspyrnuliðs Grindavíkur og íþróttakona Grindavíkur 2009, útskrifaðist sem stúdent í lok maí. Í stað hárra hæla í útskriftinni reimdi Elinborg á sig takkaskóna og tók þátt í leiknum gegn KR sem þær unnu 1-0. Útskriftarmyndin var því tekin á vellinum í faðmi liðsfélagana sem kunnu að meta fornfýsi hennar.
ÓLAFUR ÖRN RÁÐINN ÞJÁLFARI
Eftir að Grindavík tapaði sex fyrstu leikjunum í Pepsideild karla var ákveðið að skipta um þjálfara. Luka Kostic var sagt upp störfum en í hans stað var Ólaf Örn Bjarnason ráðinn sem þjálfari liðsins til næstu fjögurra ára en Grindavík komst að samkomulagi við norska félagið Brann þar sem Ólafur Örn hefur leikið undanfarin sjö ár við góðan orðstír. Hjálmar Hallgrímsson var ráðinn liðsstjóri.
SIGUR FRAMSÓKNAR OG LISTA GRINDVÍKINGA
Bæjarstjórnarkosningar fóru fram í lok maí og urðu töluverðar breytingar. Niðurstaðan varð þessi:
B-listi Framsóknarflokks: 493 atkvæði og 3 menn
D-listi Sjálfstæðisflokks: 304 atkvæði og 1 maður
G-listi Listi Grindvíkinga: 359 atkvæði og 2 menn
S-listi Samfylkingar: 229 atkvæði og 1 maður
V-listi Vinstri grænna: 77 atkvæði og enginn
Auðir og ógildir: 45
Kjörsókn: 1507 manns eða 80,7%.
JÚNÍ
NÝR MEIRIHLUTI FRAMSÓKNAR OG SJÁLFSTÆÐISFLOKKS
Framsóknarfélag Grindavíkur og Sjálfstæðisfélag Grindavíkur hafa gert með sér samkomulag um að starfa saman í meirihluta á komandi kjörtímabili, 2010-2014. Félögin heita því að starfa saman að fullum trúnaði og hafa hagsmuni allra Grindvíkinga að leiðarljósi. ,,Við viljum eiga gott samstarf við alla kjörna bæjarfulltrúa þar sem sjónarmið allra flokka eigi greiðan aðgang," sagði í fréttatilkynningu. Starf bæjarstjóra verður auglýst.
GLÆSILEGA SKREYTTUR BÆR - BLÁA HVERFIÐ ÞAÐ BEST SKREYTTA
Sem kunnugt er var Grindavíkurbæ skipt upp í fjögur litahverfi á Sjóaranum síkáta. Þetta var gert í fyrsta skipti í fyrra og tókst frábærlega vel. Nefnd fór um bæinn og var einhuga í sínum störfum. Niðurstaðan varð eftirfarandi:
Best skreytta húsið er í rauða hverfinu og er: Árnastígur 2.
Best skreytta gatan er í græna hverfinu og er: Leynisbrún.
Frumlegasta skreytingin er í appelsínugula hverfinu og er: Vesturhóp 30.
Best skreytta fyrirtæki/stofnun er í bláa hverfinu og er: Leikskólinn Laut.
Best skreytta hverfið árið 2010 er: Bláa hverfið.
VEL HEPPNAÐUR SJÓARI SÍKÁTI
Talið er að um 20 þúsund manns hafi verið á Sjóaranum síkáta í Grindavík í gær. Gríðarlegur fólksfjöldi var á hátíðarsvæðinu og af samtölum við þjónustuaðila í bænum var um algjört met að ræða. Tjaldsvæðið í Grindavík var fullt og einnig túnið hinum megin við Austurveg. Glæsileg dagskrá var alla helgina sem lauk með tónleikum Mannakorna í íþróttahúsinu.
Heiðursviðurkenningar Sjómanna- og vélstjórafélagsins komu að þessu sinni í hlut Halldórs Ingólfssonar, Ölvers Skúlasonar og Jóns J. Ragnarssonar sem gerðu sjómennskuna að ævistarfi sínu. Ólafur Örn Ólafsson fráfarandi bæjarstjóri afhenti þeim viðurkenningarnar.
Þá voru veitt verðlaun fyrir kappróður. Við höfnina var að vanda koddaslagur, kararóður og flekahlaup og var gaman að sjá hversu margir fylgdust með hátíðarhöldunum við bryggjuna.
EINSTÖK SÝNING HJÁ ÞORBIRNI
Á Sjóaranum síkáta opnaði Þorbjörn hf. sýninguna „Fiskveiðar og fiskvinnsla í Grindavík" við Ægisgötu og Hafnargötu 12. Þetta er minja- og myndasýning sem tengist sögu fyrirtækisins. Á tölvuskjám sem staðsettir eru í gluggunum eru jafnframt sýndar myndir út starfsemi fyrirtækisins.
HAFÞÓR STERKASTUR
Keppnin sterkasti maður á Íslandi var haldin á Sjóaranum síkáta í Grindavík um helgina. Keppnin var hörð og spennandi og réðust úrslitin ekki fyrr en í síðustu grein, bóndagöngu og uxagöngu. Alls mættu 7 keppendur til leiks og var hart barist. Sterkasti maður á Íslandi 2010 er Hafþór Júlíus Björnsson eftir mikla baráttu við Benedikt Magnússon.
STÆRSTI ÚTSKRIFTARÁRGANGUR GRUNNSKÓLANS FRÁ UPPHAFI
Skólaslit unglingastigsins í Grunnskóla Grindavíkur. Veitt voru ýmis verðlaun fyrir góðan námsárangur, svo og hjálpsemi, dugnað og ósérhlífni og framfarir ásamt því að formaður nemendafélagsins hélt tölu fyrir hönd 10. bekkinga. Þetta var stór dagur fyrir nemendur í 10. bekk sem útskrifuðust og yfirgefa skólann sinn eftir tíu ára skólasetu. Þetta er jafnframt stærsti útskriftarárgangur grunnskólans frá upphafi.
SÉRSTÆTT ÚTKALL
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík var kölluð eftir að rútubílstjóri nokkur kom auga á kind sem tekist hafði að koma sér í sjálfheldu með lamb sitt í Krísuvíkurbjargi. Björgunarsveitarmennirnir náðu ánni niður ásamt lambinu og beittu til þess sigvaði með þeim hætti að björgunarsveitarmaður klæðist sigbelti sem fest er í bíl sem bakkar, en bílstjórinn er í beinu talstöðvarsambandi við sigmanninn sem stjórnar hraðanum.
MSS OPNAR ÚTIBÚ
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum (MSS) opnaði útibú í Grindavík. Starfsemi MSS hafði aukist gríðarlega undanfarin ár og því þótti tímabært að auka námskeiðahald í Grindavík, að sögn Guðjónínu Sæmundsdóttur, forstöðumanns MSS. Fisktækniskóli Suðurnesja opnaði fyrir stuttu í Grindavík. Eru þessar tvær stofnanir undir sama þaki að Víkurbraut 56 en ætlunin er að samnýta þannig húsnæði og starfsfólk.
HORN Á HÖFÐI FÉKK GRÍMUNA
Uppskeruhátíð sviðlista, Gríman 2010, var haldin miðvikudaginn 16. júní í Þjóðleikhúsinu og í beinni útsendingu á Stöð 2. Grindvíska atvinnuleikhúsið og Bergur Ingólfsson fengu glæsilega viðurkenningar en segja má að Bergur hafi sópað til sín verðlaunum. Leiksýningin Horn á höfði eftir Berg Þór Ingólfsson og Guðmund S. Brynjólfsson í sviðssetningu GRALS - Grindvíska atvinnuleikhússins var valin BARNASÝNING ÁRSINS. Leikstjórn annaðist Bergur Þór Ingólfsson. Þetta er mikinn heiður fyrir lítið atvinnuleikhús í Grindavík og þá sem að GRAL standa.
Bergur vann til fleiri verðlauna. Sýning ársins var valin leiksýningin Jesús litli í leikstjórn Benedikts Erlingssonar og í sviðssetningu Leikfélags Reykjavíkur. Sýningin var frumsýnd á Litla sviði Borgarleikhússins þann 20. nóvember 2009. Höfundar verksins, þau Benedikt Erlingsson, Bergur Þór Ingólfsson, Halldóra Geirharðsdóttir og Snorri Freyr Hilmarsson hlutu einnig verðlaun sem leikskáld árins
17. JÚNÍ HÁTÍÐAHÖLD Í BLÍÐSKAPARVEÐRI
Hátíðarhöldin 17. júní í Grindavík fóru fram í blíðskaparveðri við Grunnskóla Grindavíkur. Mikið var lagt upp úr dagskráratriðum fyrir börnin en þar komu við sögu Horn á höfði, Brúðubíllinn, söngvakeppni barna, Pálmar Guðmundsson, hestateyming, töframaður, söngvakeppni barna og þá voru leiktæki á svæðinu og ýmsar íþróttaþrautir. Eftir karamelluregn og skrúðgöngu frá Landsbankatúninu var dagskráin við grunnskólann annað árið í röð sem er vel til fundið. Bæjarbúar fjölmenntu að þessu sinni á hátíðarhöldin sem er ánægjulegt. Allt fór vel fram þrátt fyrir nokkra rigningadropa þegar líða fór á daginn. Elínborg Ingvarsdóttir var fjallkonan og Inga Bjarney Óladóttir var söngvakeppni barna.
GUNNUHVER OPNAÐUR AÐ NÝJU
Háhitasvæðið við Gunnuhver á Reykjanes í landi Grindavíkubæjar hefur verið opnað að nýju fyrir ferðamenn eftir þriggja ára lokun. Almannavarnir lokuðu svæðinu af öryggisástæðum eftir að aukin virkni hljóp í hverinn með þeim afleiðingum að hann breiddi úr sér, eyðilagði útsýnispall og tók í sundur veginn. Búið er að byggja nýja glæsilega útsýnspalla fyrir ferðamenn á svæðinu og er þar jafnframt aðgengi fyrir fatlaða. Þar er hægt að sjá og heyra orkuna brjótast úr iðrum jarðar.
300 MANNS Í JÓNSMESSUGÖNGU
Hátt í þrjú hundruð manns mættu í Jónsmessugöngu Bláa lónsins og Grindavíkurbæjar í blíðskapar veðri. Stemmningin var góð að vanda. Gengið var frá sundlauginni og upp á Þorbjörn þar sem kveik var í varðeldi og hljómsveitin Árstíðir sá um brekkusönginn að þessu sinni við góðar undirtektir. Síðan var haldið af stað í Bláa lónið.
VEL HEPPNAÐ SJÓSTANGVEIÐIMÓT
Sjóstangaveiðimót SJÓSKIP fór fram frá Grindavík að þessu sinni, í ágætu veðri en mótið var haldið í samvinnu við Stangveiðifélag Grindavíkur. Keppendur voru 24, 20 karlar og 4 konur. Sex bátar fluttu veiðimenn út á miðin en Stakkavík var einn helsti bakhjarl mótsins og var Hermann Ólafsson verðlaunaður fyrir sitt framlag. Þátttakendur voru yfir sig ánægðir með móttökurnar í Grindavík.
GUÐBERGUR MEÐ ÁRÓÐURSSÝNINGU
Guðbergur Bergsson rithöfundur og heiðursborgari Grindavíkurbæjar opnaði áróðurssýningu í Saltfisksetrinu. Þar sýndi Guðbergur fjöldan allan af áróðursveggspjöldum sem hann hefur safnað í gegnum tíðina í langdvölum sínum víða um heim.