Flugeldamarkaður Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar hefst á morgun, þriðjudaginn 28. desember kl. 15:00. Þá verður hin árlega flugeldasýning Björgunarsveitarinnar við Saltfisksetrið á morgun þriðjudag kl. 20:00 en sýningin er í boði sveitarinnar og ýmissa fyrirtækja í bænum. Flugeldamarkaðurinn er langstærsta fjáröflun björgunarsveitarinnar. Opnunartími er sem hér segir:
Þriðjudagur 28. des. kl. 15-22
Miðvikudagur 29. des. kl. 15-22
Fimmtudagur 30. des. kl. 13-22
Föstudagur kl. 31. des. kl. 10-16
Dreifimiði verður sendur í öll hús í bænum. Þar geta krakkar litað myndina og skilað henni á flugeldamarkaðinn og þannig er hægt að vinna veglegan fjölskyldupakka frá Flugeldamörkuðum björgunarsveitanna.