Umferðaróhapp varð á Grindavíkurvegi á jóladag þegar ökumaður missti stjórn á bíl sínum í miklum krapa með þeim afleiðingum að bíllinn skall á upplýsingaskilti við innkomuna í bænum. Skiltið skemmdist talsvert sem og bíllinn sem var illa ökufær á eftir. Engan sakaði eftir því sem næst verður komist.