Hin einstaka firmakeppni knattspyrnudeildar Grindavíkur og Lýsis fer fram 30. desember nk. í íþróttahúsinu. Firmakeppnin hefur verið fastur liður síðan 1986 og hafa margir kunnir kappar spila á mótinu í gegnum tíðina. Síðast mættu 18 lið og um 600 áhorfendur á keppnina sem er ómissandi liður á milli jóla og nýárs.
Skráning á mótið í ár er hafin. Senda skal skráningu á umfg@centrum.is Verð pr. lið er 25.000 kr. Aðeins má nota tvo meistaraflokksmenn í hverju liði líkt og undanfarin ár. Skráningu á mótið lýkur 28. desember. Athygli er vakin á því að tvö kvennalið skráðu sig í fyrra og eru konur hvattir til þess að fjölga liðunum á mótinu.