Mikið var um að vera í Grindavíkurhöfn rétt fyrir jólin hjá bátum Þorbjarnar hf. og Vísis hf. eins og reyndar hjá fleiri útgerðum. Á Þorláksmessu lönduðu Gnúpur GK 11, Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 og Hrafn GK 111 sem Þorbjörn hf. gerir út alls 1.040 tonnum og var aflaverðmætið 282 milljónir króna. Valdimar GK 195 og Tómas Þorvaldsson GK 10 lönduðu báðir 20. des.
Þá lönduðu Vísisbátarnir Kristín og Fjölnir þann 22. og 23. desember í Grindavík og Jóhanna þann 20.