Bćjarráđ mótmćlir hugmyndum um vegatolla á Reykjanesbraut

  • Fréttir
  • 23. desember 2010

Bæjarráð Grindavíkurbæjar mótmælir hugmyndum um vegatolla á Reykjanesbraut.  Auknar álögur á íbúa og atvinnulíf á Suðurnesjum í formi vegatolla munu hafa verulega neikvæð áhrif á búsetu, atvinnustig, fasteignaverð og fyrirtæki á Suðurnesjum.  Aukinn kostnaður við ferðir milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins mun leiða til þess að íbúar og fyrirtæki á Suðurnesjum sæki í minna mæli atvinnu, þjónustu og verkefni á höfuðborgarsvæðinu. Það mun leiða til aukins atvinnuleysis á svæðinu og lækkandi fasteignaverðs.

Vakin er athygli á því að ríkisstjórnin hefur sjálf skilgreint Suðurnes sem hluti af atvinnusvæði höfuðborgarsvæðisins í tillögu að Sóknaráætlun 20/20. Jafnframt er ljóst er að aukinn ferðakostnaður mun hafa neikvæð áhrif á ferðaþjónustu á svæðinu, en stór hluti ferðamanna á Suðurnesjum fer dagsferðir um svæðið frá höfuðborgarsvæðinu, með viðkomu í Bláa lóninu.

Bæjarráð Grindavíkurbæjar bendir jafnframt á að íbúar á Suðurnesjum munu ekki eiga um aðra leið að velja á leið sinni á höfuðborgarsvæðið og eru því nauðbeygðir til að greiða vegatollinn. Vegatollur á Reykjanesbraut er því ekki samanburðarhæfur við vegatoll í Hvalfjarðargöngum eða í væntanlegum Vaðlaheiðargöngum, þar sem vegfarendur geta valið að fara Hvalfjörð eða Víkurskarð og sloppið við tollinn.

Bæjarráð Grindavíkurbæjar hvetur því samgöngunefnd Alþingis og samgönguráðherra til að endurskoða hugmyndir um vegatolla á Reykjanesbraut.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir