Við nokkrir jólasveinar viljum gjarnan hjálpa foreldrum, öfum, ömmum og fyrirtækjum við að færa bæjarbúum jólapakka á aðfangadag, frá klukkan 10:00 til 13:00. Umboðsmenn jólasveinanna hjá Lionsklúbbi Grindavíkur, taka á móti vel merktum pökkum gegn vægu gjaldi, 500 kr/pakkinn, í Verkalýðshúsinu Víkurbraut 46 fimmtuudaginn 23. desember (Þorláksmessu) frá klukkan 17:00 til 21:00.
Jólakveðjur Kertasníkir
Munið að merkja: fullt nafn, heimilisfang