Eins og fram hefur komið er það markmið Bæjarstjórnar Grindavíkur að árið 2011 verði enginn rekstrarhalli en heimilt verður að nýta vaxtatekjur hitaveitusjóðsins til rekstrar. Samkvæmt nýsamþykktri fjárhagsáætlun nást þessi markmið en gripið verður til ýmissa hagræðingaraðgerða í rekstri bæjarins til þess að ná þessu fram.
Flestar gjaldskrár hafa verið hækkaðar um a.m.k. 5% og tekin verða aftur upp gjöld í tónlistarskóla, sundlaug og skólahóp á leikskóla en rétt er að taka fram að ef gjaldskrár hefðu fylgt verðlagi frá 2007 væru þær mun hærri. Þá hefur verið gripið til ýmissa annarra hagræðingaraðgerða og hér eru þær helstu:
• Tekin verða upp gjöld í tónlistarskóla á næsta skólaári, þ.e. frá haustinu 2011, eða 49.000 kr. fyrir fullt nám. Skólagjöldin eru engu að síður talsvert lægri borið saman við sveitarfélög á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæði.
• Álagningarstuðlar fasteignagjalda hækka til að mæta lækkun á fasteignamati á íbúðarhúsnæði. Fasteignagjöld á atvinnuhúsnæði hækka.
• Felldur verða út 4ra tíma gjaldfrjáls leikskóli fyrir 5 ára börn frá 1. ágúst. Dregið verður úr opnunartíma með þeim hætti að lokað verður kl. 16.15 frá 1. ágúst á báðum leikskólunum.
• Gert er ráð fyrir að gerður verði skólasamningur við Grunnskóla Grindavíkur á grunni svokallaðs Kópavogsmódels. Greiðsluþátttaka foreldra í skólamat breytist frá 1. janúar og verður 50% af heildarverði skólamatsins. Foreldrar hafa greitt 220 kr. fyrir hverja máltíð en frá áramótum verður hlutur foreldra 241 kr.
• Þá hefur gjaldskrá Skólasels verið endurskoðuð og breytt til samræmis við nágrannasveitarfélögin í ljósi þess að aðstaða hefur breyst til mikilla muna frá því gjaldskrá var ákveðin. Þessi gjaldskrá tekur gildi á NÆSTA skólaári, þ.e. frá 1. ágúst :
Skólasel frá 1. ágúst 2011
Allt að 20 tímum pr. mán 5.500
Frá 21 til 40 tíma pr. mán 9.900
Frá 41 til 60 tíma pr. mán 14.500
Frá 61 til 80 tíma pr. mán 18.900
Systkinaafsláttur á hvern gjaldflokk
2. barn 50%
3. barn 75%
• Sveitarfélagið tekur við ábyrgð á málefnum fatlaðra um áramót. Sú þjónusta verður samþættuð við aðra þjónustu eins og kostur er með hagræðingu að leiðarljósi.
• Lagðar hafa verið fram tillögur um breytingar í öldrunarþjónustu sem miða að bættri þjónustu og lægri kostnaði.
• Styrkir og framlög til íþrótta-, æskulýðs- og menningarmála lækka umtalsvert en unnið er að nánari útfærslu en ljóst að æfingagjöld verða tekin upp að nýju. Þessi styrkir eru mun hærri en þekkist í öðrum bæjarfélögum. Engin framlög verða til uppbyggingar reiðhallar og golfvallar. Gert ráð fyrir sambærilegu fyrirkomulagi og útgjöldum Vinnuskóla og voru 2008. Dregið hefur verið úr opnunartíma í íþrótta- og sundmiðstöð og gjaldskráin endurskoðuð, stakt gjald barna í sund verður 200 kr. en stakt gjald fullorðinna 400 kr. en sem fyrr er hagstæðast að kaupa afsláttarkort. Dregið verður lítillega úr opnunartíma Þrumunnar. Félagsstarf eldri borgara er til endurskoðunar samhliða breytingum á öldrunarþjónustu. Hætt verður með gæsluvöll og dregið verður úr framlögum til Saltfisksetursins.
• Bókasafnið mun fá auknar tekjur með því að taka upp árgjöld, kr.1500.- á skírteini. Kannaðir verða kostir og gallar þess að sameina skóla- og almenningsbókasafn.
• Tekin verður upp ný gjaldskrá hjá Tæknideildinni, Hafin er vinna á vegum allra sveitarfélaganna á Suðurnesjum um hagræðingu í götulýsingu. Hætt verður akstri Grindavík-Reykjanesbraut í lok þessa skólaárs, þ.e. í maí. Kanna á kosti og galla þess að sameina alla umsjón fasteigna, gatna, veitna og umhverfis í eina stoð- og þjónustudeild. Slökkvilið Grindavíkur og höfnin hækka sínar gjaldskrár.
• Varðandi sameiginlegan kostnað verður hafin vinna við endurskoðun stjórnskipulags bæjarins, m.a. með það að markmiði að fækka nefndum og skýra verkferla. Hætt verður að greiða nefndarlaun til annarra en kjörinna fulltrúa. Kostnaður við aðkeypta þjónustu verður lækkaður, svo sem endurskoðun og fjármálaráðgjöf. Kannaðir verða kostir og gallar þess að auka samstarf við önnur sveitarfélög um ýmsa stoðþjónustu.
• Bæjarstjórn samþykkti að fjárhæðir vegna hámarksafsláttar af fasteignaskatti og fráveitugjaldi hækki um 5%, aðrir flokkar hækki ekki. Með þessu er gert ráð fyrir að öryrkjar og eldri borgarar sem eingöngu þiggja framfærslu frá Tryggingastofnun fái 100% afslátt af fasteignaskatti og fráveitugjaldi.
• Hámarks heilsustyrkir starfsfólks Grindavíkurbæjar lækka úr 25.000 í 20.000 kr. Bæjarstjórn samþykkir jafnframt að lækka starfsaldurstengdar greiðslur um 50%. Kannaðir verða kosti og galla við að taka upp viðveruskráningu í öllum deildum. Föstum aksturssamningum verður sagt upp frá 1. janúar. Greitt verður samkvæmt akstursdagbók.
• Reynt verður eins og kostur er að ráða ekki í störf sem losna og dregið úr aðkeyptri þjónustu.
Heildarniðstaðan er þessi:
Rekstrarniðurstaða sveitarsjóðs, þ.e. A-hluta, fyrir fjármagnsliði, er áætluð 175,5 milljónir í tap. Hinsvegar er áætlaður rekstrarafgangur 24,5 milljón kr.að teknu tilliti til vaxtatekna af hitaveitusjóði og öðrum fjármagnsliðum að fjárhæð 200 milljónir. Í samanteknum reikningsskilum er gert ráð fyrir afgangi að fjárhæð 8,5 milljónir króna. Heildareignir í samanteknum reikningsskilum eru áætlaðar í árslok 2011, 8.440 milljónir kr. Þar af er áætlað að innlán standi í um 2.700 milljónir kr. í árslok 2011. Heildarskuldir og skuldbindingar eru áætlaðar 2.648 milljónir kr. Þar af er lífeyrisskuldbinding um 440 milljónir króna. Langtímaskuldir eru áætlaðar 1.753 milljónir króna í árslok 2011. Veltufé frá rekstri í samanteknum reikningsskilum árið 2011 er áætlað 317,5 milljónir kr. Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum er áætluð 143,6 milljónir króna og afborganir langtímalána eru áætlaðar 235 milljónir króna.