Litlu jólin voru haldin í Hópsskóla fyrir þessi jól í fyrsta sinn. Nemendur mættu prúðbúnir og byrjuðu að dansa í kringum jólatré á sal skólans. Síðan var haldið í kennslustofurnar þar sem þau voru með drykk og smákökur.
Þeir félagar Skyrgámur og Stekkjastaur, synir Grýlu og Leppalúða, komu í heimsókn með tilheyrandi gassagangi eins og þeir bræður eru þekktir fyrir. Þeir voru ekki tómhentir því úr poka sínu drógu þeir fínasta sleikibrjóstsykur sem börnin þáðu með gleði. Það kom reyndar smá svipur á suma nemendur þegar þeir sveinar birtust en fljótlega kom í ljós að þeir voru meinleysisgrey sem langaði til að gleðja börnin.
Síðan hófst jólafrí sem stendur fram til 3. janúar.