Áður en haldið er í jólafrí hittast nemendur og kennarar á litlu jólunum í Grunnskólanum. Dansað er kringum jólatré og farið í kennslustofurnar til að gæða sér á smákökum og drykk.
Ýmislegt er til gamans gert. 10. bekk var boðið upp á súpu sem foreldrar sáu um að elda. Annarsstaðar var lesin jólasaga farið í ýmsa leiki. Nemendur í 8.-10. bekk ákváðu að leggja kr. 500 til góðgerðamála í stað hinna hefðbundnu jólagjafa.
Að því loknu var slegið upp dansleik í sal skólans þar sem dansinn dunaði fram til miðnættis og héldu nemendur í vel þegið jólafrí sem stendur fram til 3. janúar.