Í nógu hefur verið að snúast hjá Björgunarsveitinni Þorbirni nú síðdegis eftir að aftaka veður skall á. Meðal annars losnuðu járnplötur af Pizza Islandia við Hafnargötu 6. Björgunarsveitarmenn komu á vettvang ásamt kranabíl frá Jóni og Margeiri og var reynt að festa plöturnar en björgunarsveitarmenn unnu við afar eriðar aðstæður.
Myndin var tekin í Hafnargötunni nú síðdegis.