Síðari umræða um fjárhagsáætlun 2011 fór fram í Bæjarstjórn Grindavíkur. Í bókun kemur fram að rekstrarniðurstaða sveitarsjóðs, þ.e. A-hluta, fyrir fjármagnsliði, er áætluð 175,5 milljónir í tap. Hinsvegar er áætlaður rekstrarafgangur 24,5 milljón kr.að teknu tilliti til vaxtatekna af hitaveitusjóði og öðrum fjármagnsliðum að fjárhæð 200 milljónir. Í samanteknum reikningsskilum er gert ráð fyrir afgangi að fjárhæð 8,5 milljónir króna. Fjárhagsáætlunin var samþykkt af öllum bæjarfulltrúum, bæði meiri- og minnihluta.
Heildareignir í samanteknum reikningsskilum eru áætlaðar í árslok 2011, 8.440 milljónir kr. Þar af er áætlað að innlán standi í um 2.700 milljónir kr. í árslok 2011. Heildarskuldir og skuldbindingar eru áætlaðar 2.648 milljónir kr. Þar af er lífeyrisskuldbinding um 440 milljónir króna. Langtímaskuldir eru áætlaðar 1.753 milljónir króna í árslok 2011. Veltufé frá rekstri í samanteknum reikningsskilum árið 2011 er áætlað 317,5 milljónir kr. Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum er áætluð 143,6 milljónir króna og afborganir langtímalána eru áætlaðar 235 milljónir króna.
Fjárhagsáætlun ársins 2011 er unnin í samræmi við þau rekstrarmarkmið sem bæjarstjórn samþykkti á 401. fundi. Á árinu 2011 er áætlað að það verði enginn rekstrarhalli og veltufé nægir til greiðslu afborgana af lánum. Gert er ráð fyrir að vaxtatekjur hitaveitusjóðsins séu nýttar til rekstrar og fjárfestinga, en auk þess er höfuðstóllinn lækkaður um 63,6 milljónir.
Bókun G og S lista:
,,Það var ljóst þegar farið var af stað í vinnu að nýrri fjárhagsáætlun að sú vinna yrði ekki auðveld. G-listi ásamt S-lista fengu að vera með í þeirri vinnu frá upphafi og því ber að fagna. Nýtt fólk boðaði ný vinnubrögð á komandi kjörtímabili og þessi vinna sannar það. Við vorum öll sammála um markmiðið í upphafi þessarar vinnu; koma bæjarsjóði í jafnvægi aftur eftir mikinn hallarekstur. En jafnvel þó svo að markmiðin séu þau sömu eru leiðirnar það ekki alltaf. Leiðir voru ræddar fram og til baka og reynt eftir fremsta megni að ná hagkvæmri niðurstöðu. Meirihlutinn hlustaði á okkar sjónarmið og eins og gott samstarf þarf að bera með sér var oftar en ekki komið til móts við þau sjónarmið. Það má að sjálfsögðu leiða líkum að því þegar skattar eru hækkaðir og gjaldskrár einnig að fólk finni fyrir slíku. Ekki síst þeir sem nú þegar eru að nýta þá þjónustu sem nú hækkar frá því árinu áður. Hins vegar teljum við það okkar ábyrgð að passa upp á fjárhagslega stöðu bæjarins og þess vegna var farið í að skera niður þar sem því var viðkomið.
Okkur finnst mikilvægt að það komi fram að öll stjórnsýslan, bæjarskrifstofan, nefndir o.f.l. verða tekin til gagngerrar endurskoðnar nú strax eftir áramót. Því líkt og annars staðar í stofnunum bæjarins má vel huga að og horfa í þær krónur sem þangað renna.
G og S listi"
Bókun
,,Bæjarfulltrúar B- og D lista vilja þakka fulltrúum S- og G-lista fyrir gott samstarf í fjárhagsáætlunargerð. Á tímum sem þessum skiptir miklu máli að standa saman og fulltrúar minnihlutans hafa sýnt gott fordæmi fyrir stjórnmálamenn um allt land í samstarfinu. Bæjarbúar njóta góðs af af þessari miklu samstöðu sem hefur myndast í bæjarstjórn og er slíkt til mikillar fyrirmyndar.
Fulltrúar B- og D-lista"
Ýmsar gjaldskrárbreytingar voru samþykktar á fundi bæjarstjórnar og geta bæjarbúar kynnt sér þær í fundargerð bæjarstjórnar.