Talið er að um þriðjungur bæjarbúa eða um eitt þúsund manns hafi tekið þátt í Friðargöngunni í morgun. Slökkt var á ljósastaurum í bænum en flestir göngugarpar voru með vasaljós og því skapaðist skemmtileg stemmning. Séra Elínborg Gísladóttir sóknarprestur flutti friðarboðskap og þá voru sungin tvö jólalög. Þetta var látlaus en áhrifamikil stund.
Friðargangan er haldin í samstarfi leikskólanna, grunnskólans, Tónlistarskólans og eldri borgara sem gengu fylktu liði frá sínum stofnunum að Landsbankatúninu. Markmið göngunnar er að efla samkennd og samhug með því að boða jákvæðni, gleði og kærleika meðal okkar.
Með því að smella á efstu myndina má sjá myndband frá Friðargöngunni sem var nú haldin annað árið í röð.