Ný stjórn Saltfisksetursins var kjörin á dögunum. Í henni sitja Róbert Ragnarsson bæjarstjóri, Páll Valur Björnsson, Páll Jóhann Pálsson, Lovísa Hilmarsdóttir og Jón Emil Halldórsson.
Áherslubreytingar verða í rekstrinum að því er fram kom í máli forseta bæjarstjórnar í Framsóknartíðindum í gær á þann hátt að unnið verður að Eldfjallagarðshugmynd í tengslum við setrið.