Það var líf og fjör á jólaballi Foreldrafélagsins á leikskólanum Laut á laugardaginn. Að vanda var dansað í kringum jólatréð en hápunkturinn var þegar giljagaur mætti á svæðið með nammipoka og dreifði til krakkanna. Vel var mætt að vanda.
Jólasveinninn var ekki síður vinsæll hjá mömmunum!