Hin árlega hangikjötsveisla knattspyrnudeildar Grindavíkur var haldin síðasta föstudag en þetta er sjöunda árið í röð sem hún er haldin. Bjarni Óla sá um matseldina. Heiðursgestir að þessu sinni voru Tómas Tómasson sem rak Festi á sínum tíma og Eyjamaðurinn Ingi Sigurðsson, fyrrverandi leikmaður Grindavíkur.
Tómas rifjaði upp gamla og skemmtilega tíma í Festi og Ingi fór yfir hið fræga sumar 1994 þegar Grindavík fór upp í úrvalsdeild og komst í úrslitaleik bikarkeppninnar. Þá mætti Árni Johnsen með gítarinn og hélt uppi stuðinu.
Efsta mynd: Árni Johnsen hélt uppi stuðinu.
Tommi í Festi rifjaði upp gamla tíma þegar hann rak Festi.
Ingi Sigurðsson fyrrverandi leikmaður Grindavíkur rifjaði upp keppnistímabilið 1994.