Sýslumaðurinnn í Keflavík mun loka útibúi sínu í Grindavík að Víkurbraut 25 frá og með 1. mars nk. Tveimur starfsmönnum embættisins hefur verið sagt upp störfum og þurfa Grindvíkingar því að sækja erindi sín til sýslumanns til Reykjanesbæjar frá og með þeim tíma.