Skráning hafin í firmakeppnina

  • Fréttir
  • 10. desember 2010

Hin einstaka firmakeppni knattspyrnudeildar Grindavíkur og UMFG fer fram 30. desember nk. í íþróttahúsinu. Firmakeppnin hefur verið fastur liður síðan 1986 og hafa margir kunnir kappar spila á mótinu í gegnum tíðina. Síðast mættu 18 lið og um 600 áhorfendur á keppnina sem er ómissandi liður milli jóla og nýárs.

Skráning á mótið í ár er hafin. Senda skal skráningu á umfg@centrum.is.  Verð pr. lið er 25.000 kr. Aðeins má nota tvo meistaraflokksmenn í hverju liði líkt og undanfarin ár. Skráningu á mótið lýkur 28. desember. Athygli er vakin á því að tvö kvennalið skráðu sig í fyrra og eru konur hvattir til þess að fjölga liðunum á mótinu.

Vísir hf. vann Firmakeppnina í fyrra með glæsibrag.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir