„Þetta var lélegt hjá okkur í byrjun en síðan spilum við virkilega vel í lokin," sagði Páll Axel Vilbergsson, leikmaður Grindvíkinga, ánægður með sigurinn í kvöld. Grindvíkingar unnu góðan sigur á Fjölni, 86-69, í tíundu umferð Iceland-Express deildar karla í kvöld.
„Við spiluðum alveg skelfilega í fyrsta leikhluta og ég hef í raun enga skýringu á því af hverju við erum svona lengi í gang en það hefur gerst áður í vetur," sagði Páll við Vísi.
„Þetta var mikill baráttu leikur og maður hefur svosem séð mun meiri gæði á körfuboltavellinum áður, en gæðin er ekki það sem skiptir máli heldur að vinna leikina".
„Það sem skóp þennan sigur hjá okkur var hörku varnarleikur í síðari hálfleiknum og það einmitt það sem við höfum verið að vinna í, við ætlum okkur að verða miklu betra varnarlið í ár," sagði Páll Axel sáttur að lokum.
Það er skemmst frá því að segja að Grindvíkingar settu í skotgírinn í loka leikhlutanum og voru aðeins fjórar mínútur að koma muninum upp í 16 stig. Það hreinlega opnuðust flóðgáttir fyrir utan þriggja stiga línuna hjá gestunum og þeir virtust ekki geta misnotað skot.
Sigurinn var aldrei í hættu í lokin og lauk leiknum með öruggum sigri gestanna 86-69.
Það var ekki sérstaklega fallegur körfubolti í Grafarvoginum í kvöld en mikil barátta einkenndi bæði lið. Grindvíkingar verða aftur á móti að spila mun betur ef þeir ætla sér að vera í toppbaráttunni fram að úrslitakeppninni.
Grindavík: Ryan Pettinella 20/9 fráköst, Páll Axel Vilbergsson 16/10 fráköst, Ólafur Ólafsson 14/5 fráköst, Jeremy Kelly 14/7 fráköst/5 stoðsendingar, Þorleifur Ólafsson 10, Björn Steinar Brynjólfsson 6, Kjartan Helgi Steinþórsson 2, Ómar Örn Sævarsson 2, Guðlaugur Eyjólfsson 2/5 fráköst.