Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum í Grindavík býður upp á glæsilegt úrval af námskeiðum, bæði nú fyrir jólin og svo eftir áramót. Nú í desember verður konfektgerð en síðan tekur við hvert námskeiðið á fætur öðru á nýju ári. Hér má sjá yfirlit yfir námskeiðin:
Konfektgerð í desember
Hilmir Þór Kolbeins fer í gegnum ferli konfektgerðar. Hver gerir um 100 konfektmola og súkkulaðiskál og
tekur með sér heim.
Verð: 8.900. Allur efniskostnaður innifalinn. Kennt í Grunnskóla Grindavíkur 30. nóvember, 1., 7. og
8. desember frá 18-21.
Menntastoðir
Menntastoðir er grunnnám á framhaldsskólastigi. Kennd eru eftirtalin fög; stærðfræði, íslenska, enska,
danska, námstækni og tölvu- og upplýsingatækni. Menntamálaráðuneytið hefur samþykkt að framhaldsskólar geti metið námið til eininga.
Keilir metur námið sem fullnægjandi undirbúning undir framhaldsnám í Háskólabrú.
Í náminu er lögð áhersla á að nemendur læri að læra, efli sjálfstraust sitt og lífsleikni. Námið í Menntastoðum tekur um 6 mánuði (staðnám) eða 10 mánuði (dreifinám/fjarnám) og metur Keilir námið til 50 eininga inn í Háskólabrú. Fer af stað í janúar ef næg þátttaka fæst.
Sterkari starfsmaður
Námið er ætlað einstaklingum sem vilja styrkja sig á sviði tölvutækninnar og til að ea sig í star almennt.
Námið hentar vel einstaklingum í atvinnuleit sem vilja nota tímann til að styrkja stöðu sína og eins þeim sem ekki hafa verið lengi á vinnumarkaði. Kennslustundafjöldi er 150. Menntamálaráðuneytið hefur samþykkt að framhaldsskólar geti metið námið til eininga. Verð: 27.000. Hefst þegar næst í hóp.
Aftur í nám
Aftur í nám er námsleið fyrir lesblinda. Námið er 95 kennslustundir þar sem unnið er sérstaklega með lestrarerfiðleika, einnig er farið í sjálfsstyrkingu, íslensku og tölvur. Stuðst er við Ron Davis aðferðina og eru 40 einkatímar á námskeiðinu sem miða að því að námsmenn tileinki sér tækni til að halda athygli og úthaldi við lestur og skrift auk þess að bæta lesskilning. Verð: Uppl. á skrifstofu.
Skrifstofuskólinn
Lögð er megináhersla á tölvu- og upplýsingatækni, bókhald, verslunarreikning og ensku auk þjónustu og
samskiptaáfanga. Námið er 240 kennslustundir og má meta til eininga í framhaldsskólum. Hentar vel þeim sem vilja styrkja sig fyrir margvísleg skrifstofustörf. Hefst þegar næg þátttaka næst í hóp. Verð: 43.000.
Upplýsingatækni
Tölvunámskeið fyrir byrjendur, 40 kennslustundir. Farið í Windows, Word, Excel og PowerPoint. Einnig verður farið í afritun og niðurhal. Hefst þegar næg þátttaka næst í hóp. Verð: 42.000.
Tölvan og ég!
Tölvunám fyrir byrjendur. Farið er í netlæsi, móttöku og sendingu tölvupósts og myndvinnslu 20 kest.
Verð: 21.000. Hefst þegar nægur fjöldi fæst í hóp.
Námskeið í silfursmíði
Hin vinsælu námskeið þar sem unnið með silfurleir og kopar. Bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Innifalið í námskeiði er smíði á fjórum gripum að eigin vali. Kennari: Vífill Valgeirsson. Tími: 4. febrúar kl. 18:00-22:00 og 5. febrúar kl. 10.00-14.00. Verð: 36.000.
Matargerð
Ýmsir austurlenskir smáréttir. Hefst þegar næst í hóp.
Leðurtöskugerð
Kennt er að gera tösku úr leðri. Annað hvort úr gömlum flíkum s.s. leðurbuxum eða leðurjakka eða úr nýju
leðri. Þátttakendur þurfa að koma með saumavélar og leður ef notað er gamalt. Kennari getur útvegað það efni sem þarf til viðbótar. Leður (nýtt), roð, fóður, lím, rennilásar, tvinnar, smellur, kósar ofl. selt á
kostnaðarverði. Námskeiðið tekur um 4-5 klst. Þátttökufjöldi er að hámarki 8.
Kennari: Kolbrún Sveinsdóttir. Tvö námskeið dagana 18. febrúar frá 17-22, og 19. febrúar frá 10-15.
Námskeið fyrir starfsfólk heilbrigðisstofnana. Endurhæfing einstaklinga með langvinna sjúkdóma. Hefst í byrjun febrúar.
Enska II
Lögð áhersla á að byggja upp enskan orðaforða og framburð. Kennt er á þriðjudögum frá 18-20 og hefst
kennsla 15. febrúar og stendur í 8 vikur. Leiðbeinandi: Þórey Garðarsdóttir. Lágmarksþátttaka 8 manns.
Verð: 34.000.
Norska II
Hagnýtt norskunámskeið fyrir þá sem hafa einhvern grunn í málinu. Þjálfun í orðaforða og talmáli. Kennt er á fimmtudögum frá 17:30-19:30 í átta vikur. Kennt er 4 skipti í Reykjanesbæ og fjögur skipti í Grindavík.
Kennsla hefst 20. janúar. Leiðbeinandi: Anna Björg Ingadóttir. Verð: 29.000. Lágmarksþátttaka 10 manns.
Sykurmassanámskeið
Verður haldið í febrúar. Verð: 8.000 kr. Allt efni og silikonmotta innifalið í verði.
Íslenska fyrir útlendinga
Íslenskunámskeiðin 1,2,3,4 og 5 hefjast þegar næst í hópa.
Peysuprjón
Kennt verður að prjóna peysu, t.d. lopapeysu eða vesti. Þátttakendur koma með garn eða lopa, prjóna sem hæfa garninu og uppskrift að eigin vali. Kennt þegar næst í hóp.
Náms- og starfsráðgjöf
Langar þig að fara í nám eða breyta um starfsvettvang? Áhugasviðskannanirnar Í leit að starfi og STRONG
og öll almenn ráðgjöf varðandi náms og starfsval. Tímapantanir á skrifstofu. Ráðþegum að kostnaðarlausu nema áhugasviðskönnun Strong kostar 6500.
Nánari upplýsingar og skráning á mss.is, s: 412-5967, 862-5867 eða á gudrunjona@mss.is.