Árlega úthlutun Rauða krossins, Kvenfélags Grindavíkur, Lionsklúbbs Grindavíkur og Grindavíkurkirkju til bágstaddra Grindvíkinga, verður 10. desember n.k. Hægt verður að hringja dagana 6., 7., 8. og 9. desember í Elínborgu sóknarprest í síma 426 8675 á milli 10 og 12 þessa daga, eða fara í Grindavíkurkirkju, á sama tíma.
Best er að prenta út umsókn hér á heimasíðunni, fylla hana út og fara með hana í Grindavíkurkirkju á áðurnefndum tíma.
Úthlutun fer svo fram 10. des.
Rauði krossinn
Kvenfélag Grindavíkur
Lionsklúbbur Grindavíkur
Grindavíkurkirkja