Sú nýbreytni var tekin upp í Grunnskólanum að unglingastigið heimsótti yngsta stig skólans í Hópsskóla. Heilsuganga hefur verið á dagskrá mánaðarlega undanfarin ár þar sem tvær kennslustundir hafa verið notaðar til útiveru. Nú var ákveðið að eiga notalega stund með yngsta stiginu.
Byrjað var á leikum í Hópinu og síðan farið í Hópsskóla þar sem tekið var í spil, spjall og kubba. Það var almennt tal þeirra sem tóku þátt að þetta hefði tekist eins og best varð á kosið. Stórir sem smáir höfðu gaman af og vildu helst að þetta væri gert mánaðarlega því þetta hefði verið meiriháttar.