Ríkisútvarpið hefur birt viðtöl alla frambjóðendur til Stjórnlagaþings en kosið verður á laugardaginn. Grindvíkingurinn Birna Kristbjörg Björnsdóttir er í framboði en hún er nr. 4184. Í viðtalinu við Birnu á RÚV kemur m.a. fram að hún vill að ráðherrar séu ekki þingmenn, hún vill tryggja sjálfstæði dómstóla og gera skilmerkilega og skýra stjórnarskrá sem hægt er að vinna eftir.
Þá er hún hlynnt þjóðaratkvæðagreiðslu og að forsetinn hafi áfram málskotsrétt. Birna leggur mikla áherslu á jafnréttismál. „Við eigum falleg orð á blaði en misbrestur er á að þau séu virk," segir Birna m.a. í viðtalinu. Hún vill ákvæði um jöfn hlutföll kynja á Alþingi, í ríkisstjórn, hæstarétti, dómstólum og öllum stjórnum og ráðum á vegum ríksins.
Birna segist ekki vilja hrófla við kjördæmaskipuninni því landsbyggðin eigi nú þegar undir högg að sækja og verja þurfi hlut hennar. Þá vill hún fækka þingmönnum.
Hún hvetur þjóðina til að kjósa á laugardaginn því máli skipti að fá góða kosningaþátttöku.
Hlusta má á viðtalið hér.
Birna Kristbjörg Björnsdóttir:
Viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri 2010. Fjölbrautaskóli Suðurnesja 2003. Skrifstofutækni 1989. Starfaði hjá embætti Sýslumannsins í Keflavík, í útibúinu í Grindavík, í tæp 11 ár, frá fyrri hluta árs 1999 til ársloka 2009. Áður barnauppeldi en einnig ýmis störf utan heimilis.