Samkomulag um yfirfćrslu ţjónustu viđ fatlađa frá ríki til sveitarfélaga

  • Fréttir
  • 23. nóvember 2010

Í dag var undirritað heildarsamkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um yfirfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga. Sú þjónusta sem ríkið hefur veitt fötluðu fólki samkvæmt lögum nr. 59/1992 um málefni fatlaða færist nú til sveitarfélaga þann 1. janúar 2011. Sveitarfélög og þjónustusvæði á vegum þeirra taka þá við ábyrgð á framkvæmd og fjármögnun þjónustunnar, óháð því hvort hún hefur verið veitt af ríki, sveitarfélögum, sjálfseignarstofnunum eða öðrum aðilum, með þeim réttindum og skyldum sem henni tengjast.

Markmiðið með yfirfærslunni er eftirfarandi:

a.bæta þjónustu og auka möguleika til að laga hana að þörfum notenda með hliðsjón af ólíkum aðstæðum,
b.stuðla að samþættingu nærþjónustu við íbúa sveitarfélaga,
c.tryggja að eitt stjórnsýslustig beri ábyrgð á stærstum hluta almennrar félagsþjónustu, bæta samhæfingu og draga úr skörun ábyrgðarsviða stjórnsýslustiga,
d.tryggja góða nýtingu fjármuna,
e.styrkja sveitarstjórnarstigið,
f.einfalda verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.
Þetta er stór áfangi fyrir málaflokkinn og sveitarfélögin í landinu, en um er að ræða eina viðamestu endurskipulagningu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga frá flutningi grunnskólans árið 1996.

Heildarsamkomulagið er birt á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga og þar verður síðar í dag að finna ítarlegar upplýsingar um yfirfærsluna.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir