Athygli er vakin á því að kjörfundur vegna stjórnlagaþings næsta laugardag verður í Hópsskóla að þessu sinni, en ekki Grunnskóla Grindavíkur eins og hefð er fyrir.
Kjörskrá í Grindavíkurbæ vegna kosninga til stjórnlagaþings sem fram fara 27. nóvember 2010 liggur frammi á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar fram að kjördegi. Kjörskrá miðast við lögheimili manna þann 6. nóvember síðastliðinn.
Hver sem er getur gert athugasemdir við bæjarstjórn um að nafn einhvers vanti á kjörskrá eða sé þar ofaukið. Slíkar athugasemdir er heimilt að gera fram á kjördag.
Kjörfundur verður í Hópsskóla 27. nóvember frá kl. 10:00 - 22:00. Kjósendur eru minntir á að hafa með sér persónuskilríki.
Einnig skal kjósendum bent á að heimilt er að koma með útfylltan seðil með sér á kjörstað, sem má leggja við hlið kjörseðilsins og færa tölurnar á milli. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag kosninganna eru á www.kosning.is