Um helgina fór fór fram Íslandsmeistaramótið í 25 metra laug. Þarna voru allir bestu sundmenn Íslands mættir til leiks og áttu Grindvíkingar þrjá keppendur á mótinu sem allir stóðu sig vel.
Hilmar Örn Benediktsson keppti í 50 m, 100 m og 200 m bringusundi. Skemmst frá því að segja að Hilmar komst í úrslit í öllum sínum sundum sem er frábær árangur hjá þessum efnilega pilti. Það verður gaman að fylgjast með honum það sem eftir er af tímabilinu sem stendur fram í júní.
Erla Sif Arnardóttir keppti í 100 m fjórsundi á fimmtudeginum, 50 m, 100 m og 200 m bringusundi. Erla stóð sig mjög vel og var alveg við sitt besta í öllum sundunum. Erla Sif kemur mjög vel út úr þessu móti og á örugglega eftir að bæta sig verulega á tímabilinu.
Sunneva Jóhannsdóttir keppti í 100 m flugsundi. Sunneva er búin að bæta sig verulega í fluginu. Þjálfari hennar, Magnús Már Jakobsson, er sannfærður um að hún á eftir að bæta sig meira í lengri sundum.
,,Fyrir deild eins og sunddeildina er frábært að eiga svona fulltrúa sem eru að keppa meðal þeirra allra bestu á Íslandi. Þess ber að geta að á ÍM er ekki keppt í aldursflokkum. Þau eru að keppa við fólk sem hefur keppt á Ólympíuleikum, heimsmeistara- og Evrópumótum. Við hliðina á Hilmari keppti t.d. Jakob Jóhann Sveinsson sem er einn allra besti brigusundmaður í Evrópu. Við í sunddeildinni óskum þeim til hamingju með árangurinn. Í sundinu í Grindavík eru of fáir sem æfa og langar mig til að skora á alla í Grindavík til að koma og æfa sund. Við í sunddeildinni höfum mikin metnað og það eru margar uppákomur hjá okkur, t.d. æfingabúðir úti á landi allavega tvisvar á ári, sundmót að jafnaði tvisvar í mánuði fyrir þá sem vilja það, skemmtikvöld einu sinni í mánuði og margt fleira. Æfingarnar eru miðaðar fyrir hvern og einn. Við viljum allar gerðir að fólki og allir eru velkomnir til okkar, 5 ára og eldri," segir Magnús í pistli á heimasíðu UMFG.
Mynd: Frá æfingaferð sunddeildarinnar á Benidorm í sumar.