,,Ég vissi alltaf að ég myndi koma aftur til Grindavíkur. Sérstaklega undir lok ferilsins," sagði skoski miðjumaðurinn Paul McShane sem gekk til liðs við Grindavík í síðustu viku,,Ég kem alltaf til Íslands til að hitta strákinn minn og ég er bara ánægður með að ég sé búinn að finna starf og ég er ánægður með að það sé hjá Grindavík," sagði hann við fótbolta.net.
McShane lék með Grindavík í tíu ár áður en hann fór til Fram árið 2008. Í sumar lék hann síðan með Keflvíkingum.
,,Ég talaði bara við Keflavík og Grindavík. Ég fékk líka símtal frá Víði Garði um að vera spilandi þjálfari en ég talaði ekkert við þá," sagði McShane sem leist betur á Grindavík en Keflavík.
,,Það var betra tilboð, ekki bara peningalega heldur var það smá öryggi, lengri samningur."
,,Mér leið mjög vel í Keflavík en mér fannst taka of langan tíma að klára þetta. Ég skil það líka því að ég var meiddur hálft tímabilið. Ég vildi bara klára að semja fyrir áramót til að ég vissi hvað ég væri að fara að gera."
Grindvíkingar enduðu í tíunda sæti í Pepsi-deildinni í sumar en stefnan er sett á að gera betur næsta sumar.
,,Jamie McCunnie er kominn og Magnús Björgvinsson. Vonandi bætast nokkrir við í viðbót, þeir eru að leita að framherja núna af því að Ondo er farinn. Vonandi smellur þetta allt saman og við getum gert vel á næsta tímabili," sagði McShane að lokum við Fótbolta.net.